-
1. Konungabók 21:20, 21Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
20 Akab sagði við Elía: „Þú fannst mig, óvinur minn!“+ „Já, ég fann þig,“ svaraði Elía. „Guð segir: ‚Af því að þú ert ákveðinn í* að gera það sem er illt í augum Jehóva+ 21 ætla ég að leiða ógæfu yfir þig. Ég mun sópa burt afkomendum þínum og tortíma öllum karlmönnum* af ætt Akabs,+ jafnvel hinum vesælu og veikburða í Ísrael.+
-
-
2. Kroníkubók 25:15, 16Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
15 Jehóva varð mjög reiður út í Amasía og sendi spámann til hans sem spurði: „Hvers vegna tilbiður þú þessa guði sem gátu ekki bjargað sínu eigin fólki úr höndum þínum?“+ 16 En konungur greip fram í fyrir honum og sagði: „Hver gerði þig að ráðgjafa konungs?+ Hættu,+ annars verðurðu drepinn.“ Spámaðurinn hætti þá að tala en sagði fyrst: „Ég veit að Guð hefur ákveðið að leiða yfir þig ógæfu vegna þess að þú gerðir þetta og hlustaðir ekki á ráð mitt.“+
-