Matteus segir frá
2 Jesús fæddist í Betlehem+ í Júdeu á dögum Heródesar*+ konungs. Dag einn komu stjörnuspekingar frá Austurlöndum til Jerúsalem 2 og sögðu: „Hvar er barnið sem á að verða konungur Gyðinga?+ Við sáum stjörnu hans þegar við vorum í Austurlöndum og erum komnir til að veita honum lotningu.“* 3 Þegar Heródes konungur heyrði þetta komst hann í mikið uppnám og öll Jerúsalem með honum. 4 Hann kallaði saman alla yfirprestana og fræðimennina og spurði þá hvar Kristur* ætti að fæðast. 5 Þeir svöruðu honum: „Í Betlehem+ í Júdeu því að spámaðurinn skrifaði: 6 ‚Þú, Betlehem í landi Júda, ert alls ekki ómerkilegasta borgin í augum stjórnenda Júda því að frá þér kemur stjórnandi sem verður hirðir þjóðar minnar, Ísraels.‘“+
7 Heródes kallaði þá stjörnuspekingana til sín með leynd og fékk hjá þeim nákvæmar upplýsingar um hvenær stjarnan hafði birst. 8 Hann sendi þá síðan til Betlehem og sagði: „Farið og leitið úti um allt að barninu. Látið mig svo vita þegar þið hafið fundið það svo að ég geti líka farið og veitt því lotningu.“ 9 Eftir að hafa hlustað á konung lögðu þeir af stað. En stjarnan sem þeir höfðu séð í Austurlöndum+ fór á undan þeim þar til hún staðnæmdist fyrir ofan staðinn þar sem barnið var. 10 Þeir urðu himinlifandi þegar þeir sáu stjörnuna. 11 Þeir gengu inn í húsið og sáu barnið og Maríu móður þess, féllu á kné og veittu því lotningu.* Þeir opnuðu öskjur sínar og gáfu því gjafir: gull, reykelsi* og myrru. 12 En þar sem Guð varaði þá við því í draumi+ að snúa aftur til Heródesar fóru þeir aðra leið til heimalands síns.
13 Þegar þeir voru farnir birtist engill Jehóva* Jósef í draumi+ og sagði: „Farðu á fætur, taktu barnið og móður þess og flýið til Egyptalands. Verið þar þangað til ég læt þig vita því að Heródes ætlar að leita að barninu til að drepa það.“ 14 Jósef fór þá á fætur, tók barnið og móður þess um nóttina og fór til Egyptalands. 15 Hann bjó þar þangað til Heródes dó. Þannig rættist það sem Jehóva* lét spámann sinn segja: „Ég kallaði son minn frá Egyptalandi.“+
16 Heródes reiddist heiftarlega þegar hann áttaði sig á að stjörnuspekingarnir höfðu leikið á hann. Hann sendi menn og lét drepa alla drengi í Betlehem og nágrenni, tveggja ára og yngri, en það samsvaraði þeim tíma sem hann hafði komist að hjá stjörnuspekingunum.+ 17 Þá rættist það sem sagt var fyrir milligöngu Jeremía spámanns: 18 „Rödd heyrist í Rama, grátur og harmakvein. Það er Rakel+ sem grætur börn sín og vill ekki láta huggast því að þau eru ekki lengur á lífi.“+
19 Þegar Heródes var dáinn birtist engill Jehóva* Jósef í draumi+ í Egyptalandi 20 og sagði: „Stattu upp, taktu barnið og móður þess og farðu til Ísraelslands því að þeir sem sóttust eftir lífi* barnsins eru dánir.“ 21 Hann hélt þá af stað með barnið og móður þess og kom til Ísraelslands. 22 En þegar hann frétti að Arkelás réði ríkjum í Júdeu í stað Heródesar föður síns þorði hann ekki að fara þangað. Auk þess fékk hann viðvörun frá Guði í draumi+ og fór því til Galíleu.+ 23 Hann settist að í borg sem heitir Nasaret+ til að það rættist sem sagt var fyrir milligöngu spámannanna: „Hann verður kallaður Nasarei.“*+