Jobsbók
33 En hlustaðu nú á mig, Job,
hlustaðu á allt sem ég segi.
2 Ég verð að opna munninn,
tunga mín* verður að fá að tala.
5 Svaraðu mér ef þú getur,
berðu fram rök þín og vertu tilbúinn að verja þig.
6 Við erum jafnir frammi fyrir hinum sanna Guði,
ég var líka myndaður úr leir.+
7 Þú þarft ekki að vera hræddur við mig,
ég ætla ekki að þjarma að þér og buga þig.
8 En ég heyrði þig segja,
já, ég heyrði það margsinnis:
10 En Guð finnur tilefni til að vera á móti mér,
hann lítur á mig sem óvin.+
11 Hann setur fætur mína í gapastokk
og fylgist með hverju skrefi mínu.‘+
12 En þú hefur rangt fyrir þér svo að ég ætla að svara þér:
Guð er miklu meiri en dauðlegur maður.+
13 Af hverju deilirðu við hann?+
Er það af því að hann svaraði ekki öllu sem þú sagðir?+
14 Guð talar bæði einu sinni og tvisvar
en enginn gefur því gaum.
15 Í draumi, í nætursýn,+
þegar menn eru í fastasvefni,
meðan þeir sofa í rúmi sínu
16 þá opnar hann eyru þeirra+
og brýnir fyrir þeim fyrirmæli sín*
17 til að maðurinn hætti að syndga+
og til að forða honum frá hroka.+
19 Maðurinn er einnig áminntur með kvölum í rúmi sínu
og stöðugum verkjum í beinum sínum.
20 Hann fær ógeð á brauði
og afþakkar jafnvel fínustu kræsingar.+
21 Hann horast niður
og verður ekkert nema skinn og bein.
22 Sál* hans stendur á grafarbakkanum,
hann nálgast þá sem valda dauða.
23 Ef sendiboði* kemur til hans,
einn málsvari af þúsund,
og segir honum hvað sé rétt
24 þá finnur Guð til með honum og segir:
‚Hlífið honum við að fara ofan í gröfina!+
Ég hef fundið lausnargjald!+
26 Hann biður til Guðs+ og hlýtur velþóknun hans,
hann fær að sjá auglit Guðs og hrópar af gleði
og Guð mun aftur telja dauðlegan mann réttlátan.
27 Hann segir öðrum:*
29 Já, Guð gerir allt þetta fyrir manninn,
tvisvar, jafnvel þrisvar,
30 til að bjarga honum frá gröfinni
svo að ljós lífsins lýsi honum.+
31 Taktu nú eftir, Job! Hlustaðu á mig!
Vertu hljóður því að ég hef meira að segja þér.
32 Ef þú hefur eitthvað að segja skaltu svara mér.
Talaðu, því að ég vil gjarnan sýna fram á að þú hafir rétt fyrir þér.
33 Ef þú hefur ekkert að segja skaltu hlusta á mig.
Vertu hljóður og ég skal kenna þér hvað viska er.“