Fyrri Konungabók
17 Elía*+ frá Tisbe í Gíleað+ sagði við Akab: „Svo sannarlega sem Jehóva Guð Ísraels lifir, sá sem ég þjóna,* skal hvorki falla dögg né regn næstu árin nema ég skipi svo fyrir.“+
2 Jehóva sagði við Elía: 3 „Farðu héðan, haltu í austur og feldu þig í Krítardal* sem er austan við Jórdan. 4 Þú skalt drekka úr læknum og ég mun skipa hröfnunum að færa þér mat.“+ 5 Hann lagði strax af stað og gerði það sem Jehóva hafði sagt honum. Hann fór og settist að í Krítardal, austan við Jórdan. 6 Hrafnarnir færðu honum brauð og kjöt á morgnana og brauð og kjöt á kvöldin, og hann drakk úr læknum.+ 7 En að nokkrum tíma liðnum þornaði lækurinn upp+ því að það hafði ekki rignt í landinu.
8 Þá sagði Jehóva við Elía: 9 „Haltu af stað og farðu til Sarefta sem tilheyrir Sídon og vertu þar um kyrrt. Ég mun segja ekkju nokkurri sem býr þar að gefa þér að borða.“+ 10 Hann lagði þá af stað og fór til Sarefta. Þegar hann kom að borgarhliðinu var þar ekkja nokkur að tína saman eldivið. Hann kallaði til hennar og sagði: „Færðu mér vatnssopa að drekka.“+ 11 Þegar hún fór að sækja vatnið kallaði hann á eftir henni: „Færðu mér líka brauðbita.“ 12 En hún svaraði: „Svo sannarlega sem Jehóva Guð þinn lifir á ég ekkert brauð. Ég á aðeins hnefafylli af mjöli í stórri krukku og örlitla olíu í lítilli krús.+ Þegar ég hef tínt saman nokkur sprek fer ég heim að matbúa handa mér og syni mínum svo að við getum borðað og síðan dáið.“
13 Þá sagði Elía við hana: „Vertu ekki hrædd. Farðu heim og gerðu eins og þú sagðir. En bakaðu fyrst handa mér lítið brauð úr því sem þú átt og færðu mér það hingað. Síðan geturðu matbúið eitthvað handa þér og syni þínum 14 því að Jehóva Guð Ísraels segir: ‚Mjölkrukkan mun ekki tæmast og olían í krúsinni ekki klárast fyrr en Jehóva lætur rigna á jörðina.‘“+ 15 Hún fór og gerði eins og Elía sagði. Þau fjölskyldan og Elía höfðu nóg að borða í langan tíma.+ 16 Stóra mjölkrukkan tæmdist ekki og olían í litlu krúsinni kláraðist ekki, rétt eins og Jehóva hafði sagt fyrir milligöngu Elía.
17 Nokkru síðar veiktist sonur konunnar sem átti húsið. Hann varð fárveikur og dó að lokum.*+ 18 Þá sagði hún við Elía: „Hvað hef ég gert þér, þú maður hins sanna Guðs? Komstu til að minna mig á synd mína og drepa son minn?“+ 19 En hann svaraði: „Láttu mig fá son þinn.“ Síðan tók hann drenginn úr fangi hennar, bar hann upp í þakherbergið þar sem hann gisti og lagði hann á rúmið sitt.+ 20 Hann hrópaði til Jehóva: „Jehóva Guð minn,+ ætlarðu nú líka að leiða ógæfu yfir ekkjuna sem ég gisti hjá og svipta son hennar lífi?“ 21 Síðan teygði hann sig þrisvar yfir drenginn og hrópaði til Jehóva: „Jehóva Guð minn, gefðu drengnum lífið aftur.“ 22 Jehóva bænheyrði Elía+ og drengurinn lifnaði við.+ 23 Elía tók þá drenginn og bar hann úr þakherberginu niður í húsið, gaf hann móður hans og sagði: „Sjáðu, sonur þinn er lifandi!“+ 24 Þá sagði konan við Elía: „Nú veit ég fyrir víst að þú ert guðsmaður+ og að orð Jehóva sem þú flytur er sannleikur.“