Míka
Þeir slá dómara Ísraels á kinnina+ með staf.
Hann er af ævafornum uppruna, frá löngu liðinni tíð.
3 Þeir verða yfirgefnir
þar til sú sem á að fæða hefur fætt.
Þeir sem eftir eru af bræðrum hans munu snúa aftur til Ísraelsmanna.
Ef Assýringurinn ræðst inn í landið og brýst inn í virkisturna okkar+
teflum við gegn honum sjö hirðum, já, átta mönnum sem eru höfðingjar.*
Hann bjargar okkur úr höndum Assýringsins+
þegar hann ræðst inn í landið og fótumtreður svæði okkar.
7 Þeir sem eftir eru af ætt Jakobs verða meðal margra þjóðflokka
eins og dögg frá Jehóva,
eins og regnskúrir á gróðurinn
sem eru óháðar mönnum
og bíða ekki eftir þeim.
8 Þeir sem eftir eru af ætt Jakobs verða meðal þjóðanna,
innan um marga þjóðflokka,
eins og ljón meðal skógardýra,
eins og ungljón í sauðahjörð
sem ræðst á bráðina og slítur hana í sundur
og enginn getur bjargað henni.
9 Þú lyftir hendinni sigri hrósandi yfir andstæðingum þínum
og allir óvinir þínir verða afmáðir.“
10 „Þann dag,“ segir Jehóva,
„útrými ég hestum þínum og eyði vögnunum.
11 Ég legg borgir lands þíns í eyði
og ríf niður öll varnarvirki þín.
12 Ég bind enda á særingar þínar
og enginn sem stundar galdra verður hjá þér framar.+
13 Ég eyðilegg skurðgoð þín og súlur
og þú hættir að falla fram fyrir verki handa þinna.+
15 Í reiði og bræði kem ég fram hefndum
á þjóðunum sem hlýddu mér ekki.“