Sálmur
Til tónlistarstjórans. Við lagið „Leggðu ekki í rúst“. Söngljóð eftir Asaf.+
75 Við þökkum þér, Guð, við þökkum þér.
Nafn þitt er hjá okkur+
og fólk segir frá dásemdarverkum þínum.
2 Þú segir: „Ég ákveð tímann
og felli sanngjarnan dóm.
3 Þegar jörðin og allir íbúar hennar skulfu*
hélt ég stoðum hennar stöðugum.“ (Sela)
4 Ég segi við hina hrokafullu: „Gortið ekki,“
og við hina illu: „Hreykið ykkur ekki af styrk* ykkar.
5 Hreykið ykkur ekki hátt af styrk* ykkar
og verið ekki hrokafullir í tali
6 því að upphefð kemur ekki
úr austri, vestri eða suðri.
7 Nei, Guð er sá sem dæmir.+
Hann niðurlægir einn og upphefur annan.+
8 Jehóva er með bikar í hendi,+
vínið freyðir og er vel kryddað.
Hann skenkir vínið
og öll illmenni jarðar drekka það til síðasta dropa.“+
9 En ég vil kunngera þetta að eilífu,
lofa Guð Jakobs í söng.*