Söngljóð eftir Davíð.
23 Jehóva er hirðir minn,+
mig skortir ekki neitt.+
2 Hann lætur mig leggjast í grösugum haga,
leiðir mig að lækjum þar sem ljúft er að hvílast.+
3 Hann hressir mig við,+
leiðir mig um veg réttlætisins vegna nafns síns.+
4 Þótt ég gangi um dimman skuggadal+
óttast ég ekkert illt+
því að þú ert með mér.+
Smalaprik þitt og stafur veita mér öryggi.
5 Þú býrð mér borð frammi fyrir óvinum mínum,+
smyrð höfuð mitt olíu sem endurnærir mig.+
Bikar minn er barmafullur.+
6 Góðvild þín og tryggur kærleikur fylgir mér alla ævidaga mína.+
Ég vil búa í húsi Jehóva svo lengi sem ég lifi.+