Sálmur
א [alef]
3 Þeir gera ekkert rangt
heldur ganga á vegum hans.+
4 Þú hefur skipað að fyrirmæli þín
skuli vandlega haldin.+
5 Ég þrái að vera staðfastur+
og halda ákvæði þín.
6 Þá þarf ég ekki að skammast mín+
þegar ég hugleiði öll boðorð þín.
7 Ég lofa þig af einlægu hjarta
þegar ég kynnist réttlátum dómum þínum.
8 Ég ætla að halda ákvæði þín.
Ég bið þig að yfirgefa mig aldrei.
ב [bet]
9 Hvernig getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum?
Með því að gæta sín og fylgja orði þínu.+
10 Ég leita þín af öllu hjarta.
Láttu mig ekki villast frá boðorðum þínum.+
12 Lofaður sért þú, Jehóva,
kenndu mér ákvæði þín.
13 Með vörum mínum kunngeri ég
alla úrskurði þína.
ג [gimel]
17 Vertu góður við þjón þinn
svo að ég megi lifa og halda orð þín.+
18 Opnaðu augu mín til að ég sjái skýrt
allt hið dásamlega í lögum þínum.
19 Ég er bara útlendingur í landinu.+
Feldu ekki boðorð þín fyrir mér.
20 Alla daga er ég gagntekinn af þrá
eftir úrskurðum þínum.
21 Þú ávítar hrokafulla,
hina bölvuðu sem villast frá boðorðum þínum.+
22 Léttu* af mér háðung og fyrirlitningu
því að ég hef farið eftir áminningum þínum.
ד [dalet]
25 Ég ligg beygður í duftinu.+
Láttu mig halda lífi eins og þú hefur lofað.+
26 Ég hef sagt þér frá lífi mínu og þú svaraðir.
Kenndu mér ákvæði þín.+
28 Ég hef legið andvaka af sorg.
Styrktu mig eins og þú hefur lofað.
29 Haltu mér frá blekkingarvegi+
og sýndu þá góðvild að kenna mér lög þín.
30 Ég hef valið veg trúfestinnar.+
Ég veit að dómar þínir eru réttir.
31 Ég held fast við áminningar þínar.+
Jehóva, láttu mig ekki verða fyrir vonbrigðum.*+
ה [he]
34 Veittu mér skilning
svo að ég fylgi lögum þínum
og haldi þau af öllu hjarta.
39 Taktu burt smánina sem ég óttast
því að dómar þínir eru góðir.+
40 Sjáðu hve heitt ég þrái fyrirmæli þín.
Láttu mig lifa því að þú ert réttlátur.
ו [vá]
42 Þá get ég svarað þeim sem hæðist að mér
því að ég treysti á orð þitt.
43 Taktu aldrei orð sannleikans úr munni mínum
því að ég hef sett von mína á dóm þinn.*
44 Ég held alltaf lög þín,
um alla eilífð.+
47 Ég hef yndi af boðorðum þínum,
já, ég elska þau.+
ז [zajin]
50 Það hughreystir mig í raunum mínum,+
orð þín hafa haldið í mér lífinu.
53 Hinir illu vekja með mér brennandi reiði,
þeir sem snúa baki við lögum þínum.+
54 Ákvæði þín eru mér söngljóð
hvar sem ég bý.*
55 Ég hugsa um nafn þitt, Jehóva, um nætur+
svo að ég haldi lög þín.
56 Þetta hef ég tamið mér
því að ég hef fylgt fyrirmælum þínum.
ח [het]
59 Ég hef íhugað lífsstefnu mína
og vil fylgja áminningum þínum að nýju.+
60 Ég flýti mér og dreg ekki
að halda boðorð þín.+
62 Um miðnætti fer ég fram úr til að þakka þér+
fyrir réttláta dóma þína.
64 Tryggur kærleikur þinn, Jehóva, fyllir jörðina,+
kenndu mér ákvæði þín.
ט [tet]
65 Þú hefur gert vel við þjón þinn, Jehóva,
eins og þú hefur lofað.
68 Þú ert góður+ og allt sem þú gerir er gott.
Kenndu mér ákvæði þín.+
69 Hrokafullir menn sverta mig með lygum
en ég held fyrirmæli þín af öllu hjarta.
י [jód]
73 Hendur þínar gerðu mig og mótuðu.
Veittu mér skilning
til að ég geti lært boðorð þín.+
En ég ætla að íhuga fyrirmæli þín.*+
79 Láttu þá sem óttast þig snúa aftur til mín,
þá sem hafa kynnst áminningum þínum.
כ [kaf]
82 Augu mín þrá að sjá orð þín rætast.+
Ég segi: „Hvenær ætlarðu að hugga mig?“+
84 Hversu marga daga þarf þjónn þinn að bíða?
Hvenær ætlar þú að dæma þá sem ofsækja mig?+
85 Hrokagikkir grafa mér grafir,
þeir sem hunsa lög þín.
86 Öll boðorð þín eru áreiðanleg.
Menn ofsækja mig að tilefnislausu. Hjálpaðu mér!+
87 Minnstu munaði að þeir afmáðu mig af jörðinni
en ég sneri ekki baki við fyrirmælum þínum.
88 Sýndu mér tryggan kærleika og láttu mig halda lífi
svo að ég geti farið eftir áminningum þínum.
ל [lamed]
90 Trúfesti þín varir kynslóð eftir kynslóð.+
Þú hefur grundvallað jörðina svo að hún stendur.+
91 Þau* standa fram á þennan dag eins og þú hefur ákveðið
því að þau eru öll þjónar þínir.
93 Ég gleymi aldrei fyrirmælum þínum
því að með þeim hefurðu haldið mér á lífi.+
95 Illir menn bíða færis að tortíma mér
en ég hef áminningar þínar alltaf í huga.
מ [mem]
Ég hugleiði þau* allan liðlangan daginn.+
98 Boðorð þín gera mig vitrari en óvini mína+
því að ég hef þig alltaf hjá mér.
100 Ég er skynsamari en öldungar
því að ég fylgi fyrirmælum þínum.
101 Ég ætla ekki að ganga á neinum vegi vonskunnar+
því að ég vil fylgja orði þínu.
102 Ég hvika ekki frá úrskurðum þínum
þar sem þú hefur frætt mig.
104 Ég breyti skynsamlega vegna fyrirmæla þinna.+
Þess vegna hata ég sérhvern blekkingarveg.+
נ [nún]
106 Ég hef svarið eið og ætla að halda hann,
ég ætla að fara eftir réttlátum úrskurðum þínum.
107 Ég hef verið mjög þjáður.+
Jehóva, láttu mig halda lífi eins og þú hefur lofað.+
108 Jehóva, viltu taka við lofgjörðarfórnum mínum+
sem ég færi af fúsu hjarta*
og fræða mig um úrskurði þína.+
109 Ég er stöðugt í lífshættu
en ég hef ekki gleymt lögum þínum.+
112 Ég hef einsett mér* að hlýða ákvæðum þínum
öllum stundum eins lengi og ég lifi.
ס [samek]
115 Haldið ykkur fjarri mér, þið illmenni,+
svo að ég geti haldið boðorð Guðs míns.
116 Styddu mig eins og þú hefur lofað+
svo að ég haldi lífi.
Láttu ekki von mína bregðast.*+
117 Styddu mig til að ég bjargist.+
Þá skal ég alltaf hafa ákvæði þín í huga.+
118 Þú hafnar öllum sem villast frá ákvæðum þínum+
því að þeir eru falskir og svikulir.
119 Þú fjarlægir öll illmenni jarðar eins og verðlausan sora.+
Þess vegna elska ég áminningar þínar.
120 Ég skelf af ótta við þig,
ég hræðist dóma þína.
ע [ajin]
121 Ég hef gert það sem er rétt og réttlátt.
Gefðu mig ekki á vald þeim sem kúga mig!
122 Tryggðu þjóni þínum velgengni,
láttu ekki hina hrokafullu kúga mig.
125 Ég er þjónn þinn, veittu mér skilning+
svo að ég geti kynnst áminningum þínum.
126 Tíminn er kominn að Jehóva taki í taumana+
því að þeir hafa brotið lög þín.
פ [pe]
129 Áminningar þínar eru yndislegar,
þess vegna fylgi ég þeim.
132 Snúðu þér til mín og sýndu mér góðvild+
eins og þú gerir alltaf þegar þú dæmir þá sem elska nafn þitt.+
133 Leiddu mig með orði þínu
svo að ég verði öruggur í skrefi.
Megi ekkert illt ná tökum á mér.+
134 Bjargaðu mér* frá kúgurum,
þá skal ég fylgja fyrirmælum þínum.
136 Tárin streyma niður kinnar mínar
því að fólk heldur ekki lög þín.+
צ [tsade]
138 Áminningar þínar eru réttlátar
og alltaf áreiðanlegar.
139 Ég brenn af ákafa vegna þín+
því að andstæðingar mínir hafa gleymt orðum þínum.
143 Þótt angist og erfiðleikar komi yfir mig
hef ég alltaf yndi af boðorðum þínum.
144 Áminningar þínar eru réttlátar að eilífu.
Veittu mér skilning+ svo að ég fái að lifa.
ק [qóf]
145 Ég hrópa af öllu hjarta. Svaraðu mér, Jehóva.
Ég ætla að halda ákvæði þín.
146 Ég ákalla þig, bjargaðu mér!
Ég fer eftir áminningum þínum.
149 Sýndu mér tryggan kærleika+ og hlustaðu á mig.
Jehóva, láttu mig halda lífi því að þú ert réttlátur.
150 Þeir sem hegða sér skammarlega* nálgast,
þeir eru fjarlægir lögum þínum.
ר [res]
153 Sjáðu raunir mínar og bjargaðu mér+
því að ég hef ekki gleymt lögum þínum.
155 Björgunin er fjarri hinum illu
því að þeir hafa ekki áhuga á ákvæðum þínum.+
156 Miskunn þín er mikil, Jehóva.+
Láttu mig halda lífi því að þú ert réttlátur.
157 Andstæðingar mínir og þeir sem ofsækja mig eru margir+
en ég hef ekki hvikað frá áminningum þínum.
158 Ég horfi með óbeit á hina sviksömu
því að þeir fara ekki eftir orðum þínum.+
159 Sjáðu hve heitt ég elska fyrirmæli þín!
Jehóva, sýndu mér tryggan kærleika og láttu mig lifa.+
ש [sin] eða [shin]
162 Ég gleðst yfir því sem þú segir+
eins og maður sem fær mikið herfang.
164 Sjö sinnum á dag lofa ég þig
fyrir réttláta dóma þína.
166 Ég vænti björgunarinnar sem þú veitir, Jehóva,
og ég held boðorð þín.
168 Ég fylgi fyrirmælum þínum og áminningum,
þú sérð allt sem ég geri.+
ת [tá]
169 Viltu hlusta, Jehóva, þegar ég hrópa á hjálp.+
Veittu mér skilning í samræmi við orð þitt.+
170 Megi innileg bæn mín ná til þín.
Bjargaðu mér eins og þú hefur lofað.
171 Lofgjörð streymi af vörum mínum+
því að þú kennir mér ákvæði þín.
172 Tunga mín syngi um orð þín+
því að öll boðorð þín eru réttlát.
174 Ég þrái að þú bjargir mér, Jehóva,
ég hef yndi af lögum þínum.+
175 Láttu mig lifa svo að ég geti lofað þig.+
Megi dómar þínir hjálpa mér.