Jobsbók
4 Getur hreinn komið af óhreinum?+
Nei, ekki einn einasti!
5 Ef dagar mannsins eru ákveðnir
er tala mánaða hans í hendi þér.
Þú hefur sett honum mörk sem hann kemst ekki yfir.+
6 Snúðu augum þínum frá honum svo að hann fái hvíld
þar til hann lýkur vinnudegi sínum+ eins og daglaunamaður.
7 Jafnvel tréð á sér von.
Það vex á ný ef það er höggvið
og sprotar þess vaxa áfram.
8 Þótt rótin eldist í jörðinni
og stubburinn deyi í moldinni
9 vex það á ný við ilminn af vatni
og ber greinar eins og ný planta.
10 En maðurinn deyr og kraftur hans þverr.
Hvað verður um manneskjuna þegar hún gefur upp andann?+
11 Vatnið hverfur úr hafinu
og áin rénar og þornar upp.
12 Eins leggst maðurinn og stendur ekki upp aftur.+
Hann vaknar ekki meðan himinninn er til
né verður hann vakinn af svefni sínum.+
13 Bara að þú vildir geyma mig í gröfinni,*+
fela mig þangað til þér rynni reiðin,
setja mér tímamörk og muna eftir mér.+
14 Þegar maðurinn deyr, getur hann þá lifað aftur?+
Ég skal bíða meðan nauðungarvinnan varir,
þar til ég verð leystur.+
15 Þú munt kalla og ég svara þér.+
Þú þráir að sjá verk handa þinna.
16 En núna telurðu öll skref mín,
þú leitar aðeins að syndum mínum.
17 Afbrot mín eru innsigluð í poka
og þú lokar misgerðir mínar inni með lími.
18 Eins og fjall hrynur og molnar
og klettur færist úr stað,
19 eins og vatn holar stein
og úrhelli skolar burt jarðvegi,
þannig gerir þú von dauðlegs manns að engu.
20 Þú yfirbugar hann og hann deyr,+
þú breytir útliti hans og sendir hann burt.
21 Synir hans hljóta upphefð en hann veit ekki af því,
þeir eru lítils metnir en hann verður þess ekki var.+
22 Hann finnur bara til meðan hann lifir,
hann syrgir aðeins meðan hann er enn á lífi.“