29 Sá sem þrjóskast við þrátt fyrir margar áminningar+
tortímist skyndilega og enga hjálp er að fá.+
2 Þegar hinir réttlátu eru margir fagnar þjóðin
en þegar illmenni ríkir stynur þjóðin.+
3 Sá sem elskar visku gleður föður sinn+
en sá sem leggur lag sitt við vændiskonur sóar verðmætum sínum.+
4 Með réttvísi styrkir konungur stoðir landsins+
en sá sem þiggur mútur rífur þær niður.
5 Sá sem smjaðrar fyrir náunga sínum
leggur net fyrir fætur hans.+
6 Vondur maður gengur í snöru eigin synda+
en hinn réttláti fagnar og hrópar af gleði.+
7 Réttlátum manni er umhugað um rétt fátækra+
en illum manni stendur á sama.+
8 Gortarar kveikja illindi í borginni+
en hinir vitru lægja reiðina.+
9 Þegar vitur maður á í málaþrætum við heimskingja
fjúka skammir og svívirðingar en engin lausn finnst.+
10 Blóðþyrstir menn hata hinn ráðvanda+
og vilja svipta hinn réttláta lífi.
11 Heimskinginn gefur öllum tilfinningum lausan tauminn+
en vitur maður heldur ró sinni.+
12 Þegar valdhafi hlustar á lygar
verða allir þjónar hans spilltir.+
13 Fátæklingurinn og kúgarinn eiga þetta sameiginlegt:
Jehóva gefur augum beggja ljós.
14 Þegar konungur dæmir fátæka af sanngirni+
stendur hásæti hans stöðugt til frambúðar.+
15 Agi og ávítur veita visku+
en agalaust barn er móður sinni til skammar.
16 Þegar vondum mönnum fjölgar magnast illskan
en hinir réttlátu verða vitni að falli þeirra.+
17 Agaðu son þinn, þá mun hann veita þér ró
og gleði þín verður mikil.+
18 Þar sem engar vitranir eru, þar er fólk hömlulaust+
en þeir sem halda lögin eru hamingjusamir.+
19 Þjónn verður ekki agaður með orðum,
hann hlýðir þeim ekki þótt hann skilji þau.+
20 Hefurðu séð mann sem er fljótfær í tali?+
Heimskingi á meiri von en hann.+
21 Ef dekrað er við þjón frá unga aldri
verður hann vanþakklátur að lokum.
22 Reiðigjarn maður vekur deilur,+
skapstyggur maður drýgir margar syndir.+
23 Hroki mannsins auðmýkir hann+
en auðmjúkur maður hlýtur heiður.+
24 Sá sem er í slagtogi við þjóf hatar sjálfan sig.
Hann heyrir auglýst eftir vitnum en segir ekki frá.+
25 Ótti við menn er snara+
en sá sem treystir Jehóva hlýtur vernd.+
26 Margir leita áheyrnar hjá valdhafa
en Jehóva lætur manninn ná rétti sínum.+
27 Hinir réttlátu hafa andstyggð á ranglátum manni+
en hinir vondu hafa andstyggð á þeim sem gengur beinar brautir.+