Fyrsta bréf Jóhannesar
3 Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn hefur sýnt okkur+ – við erum kölluð börn Guðs!+ Og það erum við. En heimurinn þekkir okkur ekki+ vegna þess að hann hefur ekki kynnst honum.+ 2 Þið elskuðu, nú erum við börn Guðs+ en það hefur enn ekki verið opinberað hvað við verðum.+ Við vitum að þegar hann opinberast verðum við eins og hann því að við munum sjá hann eins og hann er. 3 Og allir sem hafa þessa von til hans hreinsa sjálfa sig+ eins og hann er hreinn.
4 Þeir sem halda áfram að syndga brjóta lög því að syndin er lögbrot. 5 Þið vitið líka að Jesús birtist til að taka burt syndir okkar+ og í honum er engin synd. 6 Enginn sem er sameinaður honum heldur áfram að syndga.+ Sá sem heldur áfram að syndga hefur hvorki séð hann né kynnst honum. 7 Börnin mín, látið engan afvegaleiða ykkur. Sá sem gerir það sem er rétt er réttlátur eins og Jesús er réttlátur. 8 Sá sem heldur áfram að syndga er undir áhrifum Djöfulsins þar sem Djöfullinn hefur syndgað frá upphafi.*+ Sonur Guðs birtist til að brjóta niður* verk Djöfulsins.+
9 Enginn sem er fæddur af Guði heldur áfram að syndga+ því að það sem Guð hefur sáð* varir í honum. Hann getur ekki haldið áfram að syndga þar sem hann er fæddur af Guði.+ 10 Börn Guðs og börn Djöfulsins þekkjast á þessu: Sá sem gerir ekki hið rétta er ekki Guðs megin og hið sama er að segja um þann sem elskar ekki bróður sinn.+ 11 Þetta er boðskapurinn sem þið hafið heyrt frá upphafi: Við eigum að elska hvert annað+ 12 en ekki vera eins og Kain sem var undir áhrifum hins vonda og myrti bróður sinn.+ Og hvers vegna myrti hann hann? Vegna þess að hans eigin verk voru vond+ en verk bróður hans réttlát.+
13 Látið það ekki koma ykkur á óvart, bræður og systur, að heimurinn skuli hata ykkur.+ 14 Við vitum að við höfum stigið yfir frá dauðanum til lífsins+ því að við elskum trúsystkini okkar.+ Sá sem elskar ekki er áfram í dauðanum.+ 15 Sá sem hatar bróður sinn er morðingi*+ og þið vitið að enginn morðingi hefur í sér eilíft líf.+ 16 Við þekkjum kærleikann af því að hann gaf líf sitt* fyrir okkur,+ og okkur er skylt að gefa líf* okkar fyrir bræður okkar og systur.+ 17 En ef einhver hefur nóg af efnislegum gæðum og sér bróður sinn líða skort en vill ekki sýna honum umhyggju, hvernig getur hann þá sagst elska Guð?+ 18 Börnin mín, elskum ekki með tómum orðum+ heldur í verki+ og sannleika.+
19 Þannig vitum við að við erum sannleikans megin og getum róað* hjörtu okkar frammi fyrir Guði, 20 hvað sem hjartað kann að dæma okkur fyrir, því að Guð er meiri en hjarta okkar og veit allt.+ 21 Þið elskuðu, ef hjartað dæmir okkur ekki getum við talað óhikað við Guð+ 22 og við fáum allt sem við biðjum hann um+ því að við höldum boðorð hans og gerum það sem honum líkar. 23 Og boðorð hans er að við eigum að trúa á nafn sonar hans, Jesú Krists,+ og elska hvert annað+ eins og hann gaf okkur fyrirmæli um. 24 Sá sem heldur boðorð Guðs er auk þess sameinaður Guði og Guð sameinaður honum.+ Og vegna andans sem hann gaf okkur vitum við að hann er sameinaður okkur.+