16 Hugsanir hjartans eru á valdi mannsins
en svar tungunnar kemur frá Jehóva.+
2 Maðurinn telur alla vegi sína rétta+
en Jehóva kannar ásetning hans.+
3 Leggðu verk þín í hendur Jehóva,+
þá munu áform þín heppnast.
4 Jehóva lætur allt þjóna vilja sínum,
jafnvel hina illu sem farast á ógæfudeginum.+
5 Jehóva hefur andstyggð á hinum stoltu.+
Eitt er víst: Þeir sleppa ekki við refsingu.
6 Með tryggum kærleika og trúfesti er friðþægt fyrir syndir+
og sá sem óttast Jehóva forðast hið illa.+
7 Ef Jehóva er ánægður með líferni manns
lætur hann jafnvel óvini hans sættast við hann.+
8 Betra er lítið með réttlæti+
en miklar tekjur með ranglæti.+
9 Maðurinn velur sér leið í hjarta sínu
en Jehóva stýrir skrefum hans.+
10 Úrskurðir konungs ættu að vera innblásnir af Guði,+
hann má aldrei bregðast réttlætinu.+
11 Rétt vigt og vog koma frá Jehóva,
öll lóðin í pokanum eru verk hans.+
12 Konungar hafa andstyggð á illskuverkum+
því að hásætið er grundvallað á réttlæti.+
13 Konungar hafa yndi af réttlátum orðum,
þeir elska þann sem talar af hreinskilni.+
14 Heift konungs er eins og sendiboði dauðans+
en vitur maður sefar hana.+
15 Velvild konungs veitir líf,
hylli hans er eins og regnský að vori.+
16 Hve miklu betra er að afla sér visku en gulls+
og dýrmætara að afla sér skilnings en silfurs.+
17 Vegur réttlátra sneiðir hjá hinu illa.
Sá sem gætir að hátterni sínu varðveitir líf sitt.+
18 Stolt leiðir til falls,
hroki til hruns.+
19 Betra er að vera auðmjúkur með hógværum+
en deila ránsfeng með hrokafullum.
20 Þeim farnast vel sem býr yfir næmum skilningi
og sá sem treystir á Jehóva er hamingjusamur.
21 Sá sem er vitur í hjarta verður kallaður hygginn+
og sá sem talar vingjarnlega eykur sannfæringarkraft sinn.+
22 Skilningur er lífsbrunnur þeirra sem eiga hann
en heimskan refsar hinum heimsku.
23 Hinn vitri talar af skynsemi+
og orð hans eru sannfærandi.
24 Hlýleg orð eru eins og hunang,
sæt fyrir sálina og lækning fyrir beinin.+
25 Vegur virðist kannski réttur
en liggur samt til dauða.+
26 Verkamaðurinn stritar til að seðja hungrið
því að svengdin drífur hann áfram.+
27 Illa innrættur maður grefur upp hið illa,+
orð hans eru eins og brennandi eldur.+
28 Friðarspillir kveikir illindi+
og rógberi veldur vinslitum.+
29 Ofbeldismaðurinn lokkar náunga sinn
og leiðir hann á ranga braut.
30 Hann deplar auga með illt í hyggju,
fremur illskuverk með samankrepptar varir.
31 Grátt hár er falleg kóróna+
á höfði þeirra sem ganga veg réttlætisins.+
32 Sá sem er seinn til reiði+ er betri en stríðshetja
og sá sem hefur stjórn á skapinu er meiri en sá sem vinnur borgir.+
33 Hlutkestinu er varpað í kjöltuna+
en Jehóva ræður hvað kemur upp.+