15 Milt svar stöðvar bræði+
en hvöss orð vekja reiði.+
2 Hinir vitru beita tungu sinni af þekkingu+
en vitleysan streymir úr munni heimskingjanna.
3 Augu Jehóva eru alls staðar
og fylgjast með bæði vondum og góðum.+
4 Ljúf tunga er lífstré+
en ill orð valda vonleysi.
5 Heimskinginn ber enga virðingu fyrir aga föður síns+
en sá sem er skynsamur hlustar á áminningar.+
6 Í húsi hins réttláta eru mikil auðæfi
en uppskera hins rangláta steypir honum í ógæfu.+
7 Varir hinna vitru miðla þekkingu+
en það gerir hjarta hins heimska ekki.+
8 Jehóva hefur andstyggð á fórn illra manna+
en yndi af bæn hinna réttlátu.+
9 Jehóva hefur óbeit á vegi hins rangláta+
en elskar þann sem leggur rækt við réttlæti.+
10 Þeim sem yfirgefur rétta braut þykir allur agi vondur+
en sá sem hatar áminningar mun deyja.+
11 Gröfin og eyðingardjúpið blasa við Jehóva,+
hve miklu fremur hjörtu mannanna!+
12 Hinn háðski elskar ekki þann sem ávítar hann,+
hann leitar ekki ráða hjá hinum vitru.+
13 Andlitið ljómar þegar hjartað er glatt
en hryggð í hjarta veldur sálarkvöl.+
14 Hjarta hins vitra leitar að þekkingu+
en munnur hinna fávísu nærist á heimsku.+
15 Allir dagar hins þjakaða eru slæmir+
en sá sem er léttur í lund er alltaf í veislu.+
16 Betra er að eiga lítið og óttast Jehóva+
en vera vellauðugur og áhyggjufullur.+
17 Betri er grænmetisréttur með kærleika+
en nautasteik með hatri.+
18 Skapbráður maður vekur deilur+
en sá sem er seinn til reiði stillir þrætur.+
19 Vegur hins lata er eins og þyrnigerði+
en braut hinna réttlátu er slétt.+
20 Vitur sonur gleður föður sinn+
en heimskinginn fyrirlítur móður sína.+
21 Sá sem skortir skynsemi hefur ánægju af heimsku+
en hygginn maður gengur beint áfram.+
22 Áformin bregðast séu málin ekki rædd
en allt fer vel ef ráðgjafarnir eru margir.+
23 Sá gleðst sem svarar vel+
og hvað er betra en orð á réttum tíma!+
24 Vegur lífsins liggur upp á við fyrir hinn vitra+
svo að hann lendi ekki niðri í gröfinni.+
25 Jehóva rífur niður hús hins hrokafulla+
en stendur vörð um landamörk ekkjunnar.+
26 Jehóva hefur andstyggð á ráðabruggi hins vonda+
en vingjarnleg orð gleðja hann.+
27 Sá sem aflar illa fengins gróða leiðir óhamingju yfir fjölskyldu sína+
en sá sem hatar mútur mun lifa.+
28 Hinn réttláti hugsar sig um áður en hann svarar+
en illskan streymir úr munni vondra manna.
29 Jehóva er fjarlægur hinum vondu
en heyrir bænir réttlátra.+
30 Glaðlegt augnaráð gleður hjartað,
góðar fréttir styrkja beinin.+
31 Sá sem hlustar á lífgefandi áminningar
á heima meðal hinna vitru.+
32 Sá sem hafnar aga fyrirlítur líf sitt+
en sá sem hlustar á áminningar eykur skilning sinn.+
33 Að óttast Jehóva er þjálfun í visku+
og auðmýkt leiðir til virðingar.+