18 Sá sem einangrar sig einblínir á sínar eigin langanir,
hann vísar allri skynsemi á bug.
2 Heimskingjann langar ekki til að læra,
hann vill frekar láta skoðanir sínar í ljós.+
3 Með illmenninu kemur fyrirlitning
og smáninni fylgir skömm.+
4 Orðin úr munni manns eru djúp vötn,+
lind viskunnar er iðandi lækur.
5 Það er ekki rétt að vera hliðhollur hinum vonda+
né svipta hinn réttláta rétti sínum.+
6 Orð heimskingjans kveikja þrætur+
og munnur hans býður höggunum heim.+
7 Munnur heimskingjans steypir honum í glötun+
og varirnar stofna lífi hans í hættu.
8 Orð rógberans eru eins og sælgæti,+
menn gleypa við þeim og þau renna beint niður í maga.+
9 Sá sem er latur við vinnu
er bróðir skaðvaldsins.+
10 Nafn Jehóva er sterkur turn,+
hinn réttláti hleypur þangað og hlýtur vernd.+
11 Auður hins ríka er honum víggirt borg,
varnarmúr í hans eigin ímyndun.+
12 Hrokafullt hjarta leiðir til falls+
en auðmýkt til virðingar.+
13 Ef einhver svarar áður en hann heyrir málavexti
er það heimskulegt og til skammar.+
14 Innri styrkur mannsins heldur honum uppi í veikindum+
en hver getur afborið vonleysi?+
15 Hjarta hins skynsama aflar sér þekkingar+
og eyra hinna vitru leitar þekkingar.
16 Gjöf opnar dyr+
og veitir aðgang að stórmennum.
17 Sá sem flytur mál sitt fyrstur virðist hafa á réttu að standa+
þar til andstæðingurinn kemur og spyr hann út úr.+
18 Að varpa hlutkesti bindur enda á deilur+
og sker úr málum hinna valdamiklu.
19 Erfiðara er að vinna móðgaðan bróður en víggirta borg+
og deilur eru eins og slagbrandar fyrir virkishliðum.+
20 Maginn mettast af ávexti munnsins+
og maðurinn seðst af afurðum vara sinna.
21 Dauði og líf eru á valdi tungunnar,+
sá sem beitir henni óspart mun borða ávöxt hennar.+
22 Sá sem finnur góða konu finnur gersemi+
og hlýtur velþóknun Jehóva.+
23 Hinn fátæki grátbiður um hjálp
en hinn ríki svarar hörkulega.
24 Sumir vinir hika ekki við að gera hver öðrum mein+
en til er vinur sem er tryggari en bróðir.+