Bréfið til Galatamanna
5 Kristur frelsaði okkur til að við hlytum slíkt frelsi. Verið því staðföst+ og látið ekki leggja þrælkunarok á ykkur aftur.+
2 Takið eftir hvað ég, Páll, segi ykkur: Ef þið látið umskerast kemur Kristur ykkur ekki að neinu gagni.+ 3 Ég segi enn og aftur við hvern þann mann sem lætur umskerast að hann er skuldbundinn til að halda lögin í heild sinni.+ 4 Þið eruð orðin viðskila við Krist, þið sem reynið að hljóta réttlætingu með hjálp laganna.+ Þið hafið sagt skilið við einstaka góðvild hans. 5 En við fyrir okkar leyti bíðum óþreyjufull og vongóð með hjálp andans eftir að réttlætast vegna trúar. 6 Hjá þeim sem eru sameinaðir Kristi Jesú hefur það ekkert gildi að vera umskorinn eða óumskorinn.+ Það sem skiptir máli er trú sem birtist í kærleika.
7 Þið hlupuð vel.+ Hver kom í veg fyrir að þið hélduð áfram að hlýða sannleikanum? 8 Hver taldi ykkur hughvarf? Ekki sá sem kallaði ykkur. 9 Lítið súrdeig gerjar allt deigið.+ 10 Ég treysti að þið sem eruð sameinuð Drottni+ hugsið áfram eins og ég, en sá sem kemur ykkur úr jafnvægi,+ hver sem hann er, fær verðskuldaðan dóm. 11 Hvað mig snertir, bræður og systur, ef ég væri enn að boða umskurð hvers vegna er ég þá ofsóttur? Boðunin um kvalastaurinn* væri þá engin hneykslunarhella.+ 12 Ég vildi óska að þeir sem reyna að koma ykkur í uppnám myndu vana sjálfa sig.*
13 Þið voruð kölluð til frelsis, bræður og systur, en notið ekki þetta frelsi sem tilefni til að svala girndum holdsins+ heldur þjónið hvert öðru í kærleika.+ 14 Lögin í heild sinni uppfyllast í* þessu eina boðorði: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“+ 15 En ef þið bítist og ráðist hvert á annað+ gætið þá að ykkur, þið gætuð tortímt hvert öðru.+
16 Ég segi ykkur: Lifið í andanum,+ þá látið þið ekki undan neinum girndum holdsins.+ 17 Holdið með girndum sínum stendur gegn andanum og andinn gegn holdinu. Þetta tvennt stendur hvort gegn öðru þannig að þið gerið ekki það sem þið viljið gera.+ 18 Auk þess eruð þið ekki undir lögum ef þið látið andann leiða ykkur.
19 Verk holdsins eru augljós. Þau eru kynferðislegt siðleysi,*+ óhreinleiki, blygðunarlaus hegðun,*+ 20 skurðgoðadýrkun, dulspeki,*+ fjandskapur, deilur, afbrýði, reiðiköst, ágreiningur, sundrung, sértrúarklofningur, 21 öfund, ofdrykkja,+ svallveislur og annað þessu líkt.+ Ég vara ykkur við, eins og ég hef áður gert, að þeir sem stunda slíkt erfa ekki ríki Guðs.+
22 Ávöxtur andans er hins vegar kærleikur, gleði, friður, þolinmæði,* góðvild, gæska,+ trú, 23 mildi og sjálfstjórn.+ Gegn slíku eru engin lög. 24 Og þeir sem tilheyra Kristi Jesú hafa staurfest holdið með ástríðum þess og girndum.+
25 Ef við lifum í andanum skulum við líka hegða okkur í samræmi við leiðsögn andans.+ 26 Lítum ekki of stórt á sjálf okkur+ þannig að við förum að keppa hvert við annað+ og öfunda hvert annað.