Sálmur
115 Gefðu ekki okkur, Jehóva, ekki okkur
því að þú ert tryggur í kærleika þínum og trúfastur.+
2 Af hverju ættu þjóðirnar að segja:
„Hvar er Guð þeirra?“+
3 Guð okkar er á himnum,
hann gerir það sem hann vill.
4 Skurðgoð þeirra eru silfur og gull,
handaverk manna.+
5 Þau hafa munn en geta ekki talað,+
augu en geta ekki séð.
6 Þau hafa eyru en geta ekki heyrt,
nef en finna enga lykt.
7 Þau hafa hendur en geta ekki gripið,
fætur en geta ekki gengið.+
Úr barka þeirra kemur ekkert hljóð.+
10 Ætt Arons,+ treystu á Jehóva
– hann er hjálp ykkar og skjöldur.
12 Jehóva minnist okkar og mun blessa okkur.
Hann blessar ætt Ísraels,+
hann blessar ætt Arons.
13 Jehóva blessar þá sem óttast hann,
jafnt háa sem lága.*
14 Jehóva lætur ykkur fjölga,
ykkur og börnum ykkar.+
18 En við lofum Jah
héðan í frá og að eilífu.
Lofið Jah!*