Opinberun Jóhannesar
1 Opinberun* Jesú Krists sem Guð gaf honum+ til að sýna þjónum sínum+ það sem á að gerast bráðlega. Hann sendi engil sinn og lét hann birta það Jóhannesi+ þjóni Guðs með táknum 2 en Jóhannes vitnaði um orð Guðs og um vitnisburð Jesú Krists, já, um allt sem hann sá. 3 Sá sem les upp þessi spádómsorð er hamingjusamur og sömuleiðis þeir sem heyra þau og fara eftir því sem er skrifað í spádóminum+ því að hinn tilsetti tími er í nánd.
4 Frá Jóhannesi til safnaðanna sjö+ í skattlandinu Asíu.
Megið þið njóta einstakrar góðvildar og friðar frá „honum sem er, sem var og kemur“,+ frá öndunum sjö+ sem eru frammi fyrir hásæti hans 5 og frá Jesú Kristi, „vottinum trúa“,+ sem er „frumburður upprisunnar frá dauðum“+ og „sá sem ræður yfir konungum jarðarinnar“.+
Hann elskar okkur+ og leysti okkur undan syndum okkar með blóði sínu,+ 6 og hann gerði okkur að konungsríki+ og prestum+ handa Guði sínum og föður. Hans er dýrðin og mátturinn að eilífu. Amen.
7 Hann kemur með skýjunum+ og hvert auga mun sjá hann, einnig þeir sem ráku hann í gegn, og allar ættkvíslir jarðar munu harma og kveina vegna hans.+ Já, það verður. Amen.
8 „Ég er alfa og ómega,“*+ segir Jehóva* Guð, „sá sem er og sá sem var og sá sem kemur, Hinn almáttugi.“+
9 Ég, Jóhannes, sem er bróðir ykkar og á hlutdeild með ykkur í ofsóknunum,+ ríkinu+ og þolgæðinu+ sem fylgjandi Jesú,+ var á eyjunni Patmos fyrir að hafa talað um Guð og vitnað um Jesú. 10 Með innblæstri* var ég fluttur fram á Drottins dag og ég heyrði að baki mér sterka rödd sem líktist lúðurhljómi. 11 Hún sagði: „Skrifaðu í bókrollu það sem þú sérð og sendu hana til safnaðanna sjö í Efesus,+ Smyrnu,+ Pergamos,+ Þýatíru,+ Sardes,+ Fíladelfíu+ og Laódíkeu.“+
12 Ég sneri mér við til að sjá hver talaði við mig. Þegar ég gerði það sá ég sjö ljósastikur úr gulli+ 13 og á milli þeirra sá ég einhvern líkan mannssyni,+ klæddan skósíðri flík og með gullbelti um bringuna. 14 Höfuð hans og hár var hvítt eins og hvít ull, eins og snjór, og augu hans voru eins og eldslogi.+ 15 Fætur hans voru eins og gæðakopar+ sem glóir í bræðsluofni og rödd hans var eins og niður margra vatna. 16 Hann var með sjö stjörnur í hægri hendinni,+ út af munni hans gekk langt og beitt tvíeggjað sverð+ og andlit hans var eins og sólin þegar hún skín skærast.+ 17 Þegar ég sá hann féll ég eins og dauður væri við fætur hans.
En hann lagði hægri höndina á mig og sagði: „Vertu ekki hræddur. Ég er hinn fyrsti+ og hinn síðasti+ 18 og hinn lifandi.+ Ég dó+ en sjáðu, nú lifi ég um alla eilífð+ og ég hef lyklana að dauðanum og gröfinni.*+ 19 Skrifaðu nú niður það sem þú sást, það sem gerist núna og það sem á eftir að gerast. 20 Þetta er hinn heilagi leyndardómur um stjörnurnar sjö sem þú sást í hægri hendi minni og um gullljósastikurnar sjö: Stjörnurnar sjö tákna engla safnaðanna sjö, og ljósastikurnar sjö tákna söfnuðina sjö.+