Opinberun Jóhannesar
16 Ég heyrði sterka rödd frá helgidóminum+ segja við englana sjö: „Farið og hellið úr hinum sjö skálum reiði Guðs á jörðina.“+
2 Sá fyrsti fór og hellti úr skál sinni á jörðina.+ Þeir sem höfðu merki villidýrsins+ og tilbáðu líkneski þess+ fengu kvalafull og illkynja sár.+
3 Annar engillinn hellti úr skál sinni í hafið.+ Það varð að blóði+ eins og úr dauðum manni og allar lífverur* dóu, já, allt sem var í hafinu.+
4 Sá þriðji hellti úr skál sinni í árnar og vatnsuppspretturnar*+ og þær urðu að blóði.+ 5 Ég heyrði engilinn sem réð yfir vötnunum segja: „Þú ert réttlátur, þú sem ert og þú sem varst,+ hinn trúi,+ því að þú hefur fellt þessa dóma.+ 6 Þeir hafa úthellt blóði heilagra og spámanna+ og þú hefur gefið þeim blóð að drekka+ eins og þeir eiga skilið.“+ 7 Og ég heyrði altarið segja: „Já, Jehóva* Guð, þú almáttugi,+ dómar* þínir eru sannir og réttlátir.“+
8 Sá fjórði hellti úr skál sinni á sólina+ og sólin fékk vald til að svíða mennina með eldi. 9 Mennirnir sviðnuðu í miklum hitanum en þeir lastmæltu nafni Guðs sem hefur vald yfir þessum plágum og iðruðust hvorki né heiðruðu hann.
10 Sá fimmti hellti úr skál sinni á hásæti villidýrsins. Þá myrkvaðist ríki þess.+ Mennirnir bitu í tunguna af sársauka 11 en þeir lastmæltu Guði himins vegna sára sinna og sársauka, og þeir iðruðust ekki verka sinna.
12 Sá sjötti hellti úr skál sinni í fljótið mikla, Efrat,+ og vatnið í því þornaði upp+ til að greiða veginn fyrir konungana+ sem koma frá sólarupprásinni.*
13 Nú sá ég þrjár óhreinar innblásnar yfirlýsingar* sem litu út eins og froskar og komu út af munni drekans,+ munni villidýrsins og munni falsspámannsins. 14 Þessar yfirlýsingar eru reyndar innblásnar af illum öndum. Þær gera tákn+ og fara út til konunga allrar heimsbyggðarinnar til að safna þeim saman til stríðsins+ á hinum mikla degi Guðs hins almáttuga.+
15 „Gætið ykkar! Ég kem eins og þjófur.+ Sá sem vakir+ og varðveitir föt sín er hamingjusamur. Hann þarf ekki að ganga um nakinn þannig að fólk sjái skömm hans.“+
16 Og þær söfnuðu þeim saman á staðinn sem á hebresku kallast Harmagedón.*+
17 Sá sjöundi hellti úr skál sinni yfir loftið. Þá barst sterk rödd út úr helgidóminum,+ frá hásætinu, sem sagði: „Því er lokið!“ 18 Eldingar leiftruðu, raddir heyrðust og það komu þrumur og mikill jarðskjálfti, ólíkur öllum öðrum sem höfðu orðið frá því að menn urðu til á jörðinni.+ Svo mikill og víðtækur var jarðskjálftinn. 19 Borgin mikla+ klofnaði í þrennt og borgir þjóðanna hrundu. Og Guð minntist Babýlonar hinnar miklu+ og gaf henni vínbikar heiftarreiði sinnar.+ 20 Allar eyjur flúðu og fjöllin hurfu.+ 21 Síðan féllu stór högl af himni á mennina en hvert þeirra vó um talentu.*+ Mennirnir lastmæltu Guði fyrir haglpláguna+ því að hún var óvenjumikil.