2 Hvers vegna eru þjóðirnar æstar
og þjóðflokkar með tilgangslaus áform?+
2 Konungar jarðarinnar taka sér stöðu
og valdhafarnir sameinast sem einn maður+
gegn Jehóva og gegn hans smurða.+
3 Þeir segja: „Slítum af okkur fjötra þeirra
og köstum frá okkur böndum þeirra!“
4 Þá hlær Jehóva á himnum,
hæðist að þeim úr hásæti sínu.
5 Hann talar til þeirra í reiði sinni,
skelfir þá í bræði sinni.
6 „Ég hef krýnt konung minn+
á Síon,+ mínu heilaga fjalli,“ segir hann.
7 Ég vil segja frá ákvörðun Jehóva.
Hann sagði við mig: „Þú ert sonur minn,+
í dag varð ég faðir þinn.+
8 Biddu mig, og ég skal gefa þér þjóðirnar í arf
og alla jörðina til eignar.+
9 Þú brýtur þær með járnsprota,+
mölvar þær eins og leirker.“+
10 Verið því skynsamir, þið konungar,
látið ykkur segjast, þið dómarar jarðar.
11 Þjónið Jehóva með ótta
og fagnið með lotningu.
12 Heiðrið soninn+ svo að Guð reiðist ekki
og þið farist+
því að reiði hans getur blossað upp skyndilega.
Allir sem leita skjóls hjá honum eru hamingjusamir.