Bæn Davíðs.
86 Beygðu þig niður, Jehóva, og hlustaðu,
svaraðu mér því að ég er hrjáður og fátækur.+
2 Verndaðu líf mitt því að ég er trúfastur,+
bjargaðu þjóni þínum sem treystir á þig
því að þú ert minn Guð.+
3 Vertu mér góður, Jehóva,+
því að ég kalla til þín allan daginn.+
4 Láttu þjón þinn gleðjast
því að til þín, Jehóva, leita ég.
5 Þú, Jehóva, ert góður+ og fús til að fyrirgefa.+
Þú sýnir tryggan kærleika öllum sem ákalla þig.+
6 Heyrðu bæn mína, Jehóva,
og hlustaðu þegar ég bið um hjálp.+
7 Ég kalla til þín í angist minni+
því að þú bænheyrir mig.+
8 Enginn er sem þú, Jehóva, meðal guðanna,+
engin verk eru eins og þín.+
9 Allar þjóðir sem þú skapaðir
koma og falla fram fyrir þér, Jehóva,+
og þær heiðra nafn þitt+
10 því að þú ert mikill og vinnur undraverk.+
Þú ert Guð, þú einn.+
11 Fræddu mig, Jehóva, um veg þinn,+
ég ætla að ganga í sannleika þínum.+
Gefðu mér óskipt hjarta svo að ég virði nafn þitt.+
12 Ég lofa þig, Jehóva Guð minn, af öllu hjarta+
og heiðra nafn þitt að eilífu
13 því að tryggur kærleikur þinn til mín er mikill
og þú hefur bjargað mér úr djúpi grafarinnar.+
14 Guð, hrokafullir menn rísa gegn mér,+
hópur vægðarlausra manna sækist eftir lífi mínu
og þeir bera enga virðingu fyrir þér.+
15 En þú, Jehóva, ert miskunnsamur og samúðarfullur Guð,
seinn til reiði og sýnir tryggan kærleika og trúfesti í ríkum mæli.+
16 Snúðu þér að mér og vertu mér góður.+
Gefðu þjóni þínum af krafti þínum+
og bjargaðu syni ambáttar þinnar.
17 Gefðu mér tákn um góðvild þína
svo að þeir sem hata mig sjái það og skammist sín
því að þú, Jehóva, hjálpar mér og hughreystir.