Síðari Kroníkubók
9 Drottningin af Saba+ heyrði það orð sem fór af Salómon. Hún kom því til Jerúsalem til að reyna Salómon með erfiðum spurningum.* Hún kom ásamt miklu fylgdarliði og hafði með sér úlfalda sem voru klyfjaðir balsamolíu, miklu gulli+ og eðalsteinum. Hún gekk fyrir Salómon og talaði við hann um allt sem henni var hugleikið.+ 2 Hann svaraði öllum spurningum hennar. Ekkert vafðist fyrir* Salómon heldur gat hann útskýrt allt fyrir henni.
3 Þegar drottningin af Saba hafði séð visku Salómons,+ húsið sem hann hafði byggt,+ 4 matinn á borði hans,+ sætaskipan embættismanna hans, hvernig þjónar hans þjónuðu til borðs og voru klæddir, drykkjarþjónana og klæðnað þeirra og brennifórnirnar sem hann færði stöðugt í húsi Jehóva+ varð hún agndofa af undrun. 5 Hún sagði við konung: „Það sem ég heyrði í landi mínu um afrek* þín og visku var satt. 6 En ég trúði ekki því sem ég heyrði fyrr en ég kom og sá það með eigin augum.+ Mér hafði þó ekki verið sagt frá helmingnum af þinni miklu visku.+ Þú ert miklu meiri en orðrómurinn sem ég hafði heyrt.+ 7 Menn þínir og þjónar eru lánsamir að vera alltaf hjá þér og heyra visku þína. 8 Lofaður sé Jehóva Guð þinn! Hann hafði velþóknun á þér og setti þig í hásæti sitt sem konung Jehóva Guðs þíns. Guð þinn elskar Ísraelsþjóðina+ og vill að hún vari að eilífu. Þess vegna gerði hann þig að konungi yfir henni til að tryggja rétt og réttlæti.“
9 Síðan gaf hún konungi 120 talentur* af gulli,+ afar mikið af balsamolíu og eðalsteina. Aldrei framar kom önnur eins balsamolía og drottningin af Saba gaf Salómon konungi.+
10 Þjónar Hírams og Salómons sem fluttu gull frá Ófír+ komu einnig með algúmmímvið og eðalsteina.+ 11 Úr algúmmímviðnum gerði konungur stiga fyrir hús Jehóva+ og konungshöllina+ og einnig hörpur og önnur strengjahljóðfæri handa söngvurunum.+ Ekkert þessu líkt hafði áður sést í Júdalandi.
12 Salómon konungur gaf drottningunni af Saba allt sem hún óskaði sér og bað um, meira en* hún hafði fært honum. Síðan sneri hún aftur heim til lands síns ásamt þjónum sínum.+
13 Gullið sem Salómon fékk á hverju ári vó 666 talentur.+ 14 Auk þess bárust honum vörur frá kaupmönnum og verslunarmönnum og gull og silfur frá öllum konungum Araba og héraðsstjórum landsins.+
15 Salómon konungur gerði 200 stóra skildi úr gullblendi,+ en 600 siklar* af gullblendi fóru í hvern skjöld.+ 16 Hann gerði einnig 300 litla skildi* úr gullblendi, en þrjár mínur* af gulli fóru í hvern þeirra. Konungur kom þeim síðan fyrir í Líbanonsskógarhúsinu.+
17 Konungur gerði einnig stórt hásæti úr fílabeini og lagði það hreinu gulli.+ 18 Sex þrep voru upp að hásætinu og fótskemill úr gulli var festur við það. Sætisarmar voru báðum megin á hásætinu og ljón+ stóð við hvorn þeirra. 19 Á þrepunum sex stóðu 12 ljón,+ sex hvorum megin. Ekkert þessu líkt hafði verið gert í nokkru öðru ríki. 20 Öll drykkjarílát Salómons konungs voru úr gulli og allur borðbúnaður í Líbanonsskógarhúsinu var úr hreinu gulli. Ekkert var úr silfri því að silfur var einskis metið á dögum Salómons+ 21 enda sigldu skip konungs til Tarsis+ með þjóna Hírams um borð.+ Þriðja hvert ár komu Tarsisskipin hlaðin silfri og gulli, fílabeini,+ öpum og páfuglum.
22 Salómon konungur var ríkari og vitrari en allir aðrir konungar jarðar.+ 23 Konungar alls staðar að úr heiminum leituðu til Salómons til að heyra þá visku sem hinn sanni Guð hafði lagt í hjarta hans.+ 24 Þeir komu allir með gjafir ár eftir ár: silfur- og gullgripi, fatnað,+ vopn, balsamolíu, hesta og múldýr. 25 Salómon hafði 4.000 bása fyrir hesta sína og vagna og átti 12.000 hesta.*+ Hann geymdi þá í vagnaborgunum og hjá sér í Jerúsalem.+ 26 Hann ríkti yfir öllum konungum frá Fljótinu* til lands Filistea og að landamærum Egyptalands.+ 27 Konungur gerði silfur eins algengt í Jerúsalem og grjót, og sedrusvið eins algengan og mórfíkjutrén í Sefela.+ 28 Hestar voru fluttir inn frá Egyptalandi+ og alls staðar að úr heiminum handa Salómon.
29 Það sem er ósagt af sögu Salómons+ frá upphafi til enda er skráð í frásögn Natans+ spámanns, í spádómi Ahía+ frá Síló og í sýnum Iddós+ sjáanda um Jeróbóam+ Nebatsson. 30 Salómon ríkti í Jerúsalem yfir öllum Ísrael í 40 ár. 31 Síðan var Salómon lagður til hvíldar hjá forfeðrum sínum. Hann var jarðaður í borg Davíðs föður síns+ og Rehabeam sonur hans varð konungur eftir hann.+