Sálmur
Maskíl.* Eftir Etan+ Esrahíta.
89 Ég vil syngja að eilífu um tryggan kærleika Jehóva.
Með munni mínum kunngeri ég öllum kynslóðum trúfesti þína.
2 Ég segi: „Tryggur kærleikur varir að eilífu+
og þú hefur grundvallað trúfesti þína á himnum.“
4 ‚Ég læt afkomendur þína standa+ að eilífu
og geri hásæti þitt óhagganlegt um ókomnar kynslóðir.‘“+ (Sela)
5 Himnarnir lofa undraverk þín, Jehóva,
já, söfnuður hinna heilögu trúfesti þína.
6 Hver á himnum jafnast á við Jehóva?+
Hver meðal sona Guðs+ er eins og Jehóva?
7 Guði er sýnd lotning í söfnuði hinna heilögu,+
hann er mikill og vekur lotningu allra í kringum sig.+
8 Jehóva, Guð hersveitanna,
hver er eins voldugur og þú, Jah?+
Þú ert trúfastur í einu og öllu.+
10 Þú hefur gersigrað Rahab+ og drepið hana.+
Með sterkri hendi tvístraðir þú óvinum þínum.+
11 Þinn er himinninn og þín er jörðin,+
frjósamt landið og allt sem á því er+ – þú myndaðir þetta allt.
Hægri hönd þín er á lofti.+
14 Réttlæti og réttvísi eru grundvöllur hásætis þíns,+
trúfesti og tryggur kærleikur standa frammi fyrir þér.+
15 Sú þjóð er hamingjusöm sem veit hvað fögnuður er.+
Jehóva, hún gengur í ljósinu frá andliti þínu.
16 Hún gleðst yfir nafni þínu allan liðlangan daginn
og réttlæti þitt upphefur hana.
18 Skjöldur okkar tilheyrir Jehóva,
konungur okkar Hinum heilaga Ísraels.+
19 Þá talaðir þú til þinna trúu í sýn og sagðir:
21 Hönd mín mun styðja hann+
og handleggur minn styrkja hann.
22 Enginn óvinur skal krefja hann um skatt
og enginn ranglátur maður kúga hann.+
25 Ég gef hendi hans vald yfir hafinu
og hægri hendi hans yfir ánum.+
26 Hann mun kalla til mín: ‚Þú ert faðir minn,
Guð minn og kletturinn sem bjargar mér.‘+
30 Ef synir hans snúa frá lögum mínum
og lifa ekki eftir fyrirmælum* mínum,
31 ef þeir brjóta gegn ákvæðum mínum
og halda ekki boðorð mín,
32 þá refsa ég þeim* með staf í hendi+
og hýði þá fyrir afbrot þeirra.
33 En ég læt aldrei af tryggum kærleika mínum til hans+
og svík aldrei loforð mitt.
35 Ég sór í heilagleika mínum í eitt skipti fyrir öll,
ég lýg ekki að Davíð.+
37 Það skal standa að eilífu eins og tunglið,
trúfast vitni á himnum.“ (Sela)
38 En þú hefur hafnað þínum smurða+
og útskúfað honum í reiði þinni.
39 Þú hefur rift sáttmálanum við þjón þinn,
þú hefur vanhelgað kórónu hans og kastað henni til jarðar.
40 Þú hefur brotið niður alla múra* hans,
lagt varnarvirki hans í rúst.
41 Allir sem fara hjá ræna hann,
nágrannar hans hæðast að honum.+
43 Þú hefur stöðvað sverð hans
og látið hann hörfa í stríðinu.
44 Þú hefur bundið enda á tign hans og ljóma
og steypt hásæti hans til jarðar.
45 Þú hefur stytt æskudaga hans,
þú hefur klætt hann skömm. (Sela)
46 Hve lengi, Jehóva, ætlarðu að vera í felum? Að eilífu?+
Heldur reiði þín áfram að brenna eins og eldur?
47 Mundu hve stutt ævi mín er.+
Var það til einskis að þú skapaðir alla menn?
48 Hver getur lifað og aldrei séð dauðann?+
Getur einhver flúið* undan valdi grafarinnar?* (Sela)
50 Mundu, Jehóva, hvernig hæðst er að þjónum þínum,
að ég þarf að þola* háðsglósur allra þjóða.
51 Mundu, Jehóva, hvernig óvinir þínir ausa úr sér svívirðingum
og lasta þinn smurða í hverju skrefi sem hann stígur.
52 Lofaður sé Jehóva að eilífu. Amen og amen.+