Sálmur
Til tónlistarstjórans. Jedútún.* Söngljóð eftir Davíð.
2 Hann er klettur minn og hjálp, mitt örugga athvarf.*+
Ég fell aldrei flatur.+
3 Hversu lengi ætlið þið að ráðast að einum manni og reyna að drepa hann?+
Þið eruð allir hættulegir eins og hallandi veggur, steinveggur sem er við það að hrynja.*
4 Þeir leggja á ráðin um að steypa honum úr hárri stöðu hans.
Þeir hafa yndi af lygi,
þeir blessa með munninum en bölva innra með sér.+ (Sela)
6 Hann er klettur minn og hjálp, mitt örugga athvarf.
Ég missi aldrei fótanna.+
7 Frá Guði kemur björgun mín og upphefð,
Guð er minn trausti klettur og athvarf.+
Guð er okkur athvarf.+ (Sela)
9 Mannssynirnir eru ekkert nema andgustur,
mannanna börn veita falskt öryggi.+
Þeir eru vegnir á vogarskálum og reynast léttvægari en andgustur.+
10 Treystið ekki á kúgun
og bindið ekki vonir ykkar við stolna muni.
Þótt auðurinn vaxi má hann ekki gagntaka ykkur.+
11 Eitt sinn hefur Guð talað, tvisvar hef ég heyrt hann segja:
Styrkurinn á upptök sín hjá Guði.+