Matteus segir frá
4 Andinn leiddi nú Jesú út í óbyggðirnar þar sem Djöfullinn freistaði hans.+ 2 Eftir að hafa fastað í 40 daga og 40 nætur var hann orðinn sársvangur. 3 Freistarinn+ kom þá til hans og sagði: „Ef þú ert sonur Guðs segðu þá þessum steinum að verða að brauði.“ 4 En hann svaraði: „Skrifað stendur: ‚Maðurinn lifir ekki aðeins á brauði heldur á hverju orði sem kemur af munni Jehóva.‘“*+
5 Þá fór Djöfullinn með hann inn í borgina helgu,+ setti hann upp á virkisvegg* musterisins+ 6 og sagði við hann: „Ef þú ert sonur Guðs kastaðu þér þá fram af, því að skrifað stendur: ‚Hann sendir engla sína til þín,‘ og: ‚Þeir munu bera þig á höndum sér til að þú hrasir ekki um stein.‘“+ 7 Jesús sagði við hann: „Það stendur líka skrifað: ‚Þú skalt ekki ögra Jehóva* Guði þínum.‘“+
8 Eftir það fór Djöfullinn með hann upp á afar hátt fjall, sýndi honum öll ríki heims og dýrð þeirra+ 9 og sagði við hann: „Ég skal gefa þér allt þetta ef þú fellur fram og tilbiður mig einu sinni.“ 10 Þá svaraði Jesús: „Farðu burt, Satan! Skrifað stendur: ‚Þú skalt tilbiðja Jehóva* Guð þinn+ og honum einum skaltu veita heilaga þjónustu.‘“+ 11 Þá yfirgaf Djöfullinn hann+ og englar komu og þjónuðu honum.+
12 Þegar Jesús frétti að Jóhannes hefði verið handtekinn+ hélt hann til Galíleu.+ 13 Síðar fór hann frá Nasaret og settist að í Kapernaúm+ við vatnið í héruðum Sebúlons og Naftalí, 14 til að það rættist sem Jesaja spámaður sagði: 15 „Sebúlonsland og Naftalíland við veginn til sjávar,* handan við Jórdan, Galílea þjóðanna! 16 Fólkið sem sat í myrkri sá mikið ljós og ljós+ skein á þá sem sátu í skuggalandi dauðans.“+ 17 Upp frá því fór Jesús að boða: „Iðrist, því að himnaríki er í nánd.“+
18 Hann gekk meðfram Galíleuvatni og sá tvo bræður kasta neti í vatnið. Það voru þeir Símon, sem er kallaður Pétur,+ og Andrés bróðir hans en þeir voru fiskimenn.+ 19 Hann sagði við þá: „Komið og fylgið mér og ég skal láta ykkur veiða menn.“+ 20 Þeir yfirgáfu netin samstundis og fylgdu honum.+ 21 Hann gekk áfram og sá tvo aðra bræður, þá Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróður hans.+ Þeir voru í bátnum með Sebedeusi föður sínum að bæta netin. Hann kallaði á þá+ 22 og þeir yfirgáfu bátinn og föður sinn samstundis og fylgdu honum.
23 Hann fór síðan um alla Galíleu,+ kenndi í samkunduhúsunum,+ boðaði fagnaðarboðskapinn um ríkið og læknaði fólk af hvers kyns sjúkdómum og meinum.+ 24 Fréttirnar af honum bárust um allt Sýrland. Fólk kom til hans með alla sem kvöldust og þjáðust af ýmsum sjúkdómum,+ voru andsetnir,+ flogaveikir+ og lamaðir, og hann læknaði þá. 25 Mikill fjöldi fylgdi honum þess vegna frá Galíleu, Dekapólis,* Jerúsalem, Júdeu og landinu handan við Jórdan.