Jóhannes segir frá
16 Ég hef sagt ykkur þetta til að þið hrasið ekki og fallið. 2 Ykkur verður útskúfað úr samkundunni.+ Reyndar kemur sá tími að allir sem drepa ykkur+ halda að þeir veiti Guði heilaga þjónustu. 3 Þeir gera þetta vegna þess að þeir hafa hvorki kynnst föðurnum né mér.+ 4 En ég hef sagt ykkur þetta til að þið munið eftir því þegar það gerist.+
Ég sagði ykkur þetta ekki upphaflega vegna þess að ég var hjá ykkur. 5 En nú fer ég til hans sem sendi mig.+ Enginn ykkar spyr mig þó: ‚Hvert ertu að fara?‘ 6 Þið eruð hryggir í hjarta vegna þess að ég hef sagt ykkur þetta.+ 7 En ég segi ykkur satt að það er ykkur til góðs að ég skuli fara. Ef ég fer ekki kemur hjálparinn+ ekki til ykkar en ef ég fer sendi ég hann til ykkar. 8 Þegar hann kemur mun hann sanna fyrir heiminum hvað er synd, hvað er réttlæti og hvað er dómur: 9 fyrst hvað er synd+ því að menn trúa ekki á mig,+ 10 síðan hvað er réttlæti því að ég fer til föðurins og þið sjáið mig ekki lengur, 11 og að lokum hvað er dómur því að stjórnandi heimsins er dæmdur.+
12 Ég hef enn margt að segja ykkur en þið getið ekki meðtekið það núna. 13 En þegar hann* kemur, andi sannleikans,+ mun hann leiða ykkur í allan sannleikann því að hann talar ekki að eigin frumkvæði heldur segir það sem hann heyrir og boðar ykkur það sem koma skal.+ 14 Hann mun upphefja mig+ því að hann tekur við því sem ég segi honum og boðar ykkur það.+ 15 Allt sem faðirinn á er mitt.+ Þess vegna sagði ég að hann* tæki við því sem ég segði honum og boðaði ykkur það. 16 Innan skamms sjáið þið mig ekki lengur+ en stuttu síðar munuð þið sjá mig.“
17 Þá sögðu nokkrir af lærisveinunum hver við annan: „Hvað á hann við þegar hann segir: ‚Innan skamms sjáið þið mig ekki en stuttu síðar munuð þið sjá mig,‘ og: ‚því að ég fer til föðurins‘?“ 18 Og þeir sögðu: „Hvað á hann við þegar hann segir: ‚Innan skamms‘? Við vitum ekki um hvað hann er að tala.“ 19 Jesús vissi að þeir vildu spyrja hann og sagði: „Eruð þið að ræða þetta af því að ég sagði: ‚Innan skamms sjáið þið mig ekki en stuttu síðar munuð þið sjá mig‘? 20 Ég segi ykkur með sanni: Þið munuð gráta og kveina en heimurinn mun fagna. Þið munuð syrgja en sorg ykkar mun snúast í gleði.+ 21 Þegar kona fæðir þjáist* hún vegna þess að tími hennar er kominn en þegar hún hefur fætt barnið gleymir hún þrautunum því að hún gleðst yfir því að mannsbarn er komið í heiminn. 22 Eins er með ykkur. Þið syrgið núna en þið munuð sjá mig aftur. Þá gleðjist þið í hjörtum ykkar+ og enginn tekur gleðina frá ykkur. 23 Á þeim degi munuð þið ekki spyrja mig neins. Ég segi ykkur með sanni: Ef þið biðjið föðurinn um eitthvað+ gefur hann ykkur það í mínu nafni.+ 24 Hingað til hafið þið ekki beðið um neitt í mínu nafni. Biðjið og þið munuð fá svo að gleði ykkar verði fullkomin.
25 Ég hef sagt ykkur þetta í líkingum. Sú stund kemur að ég tala ekki lengur við ykkur í líkingum heldur segi ykkur frá föðurnum berum orðum. 26 Á þeim degi biðjið þið til föðurins í mínu nafni. Með því á ég ekki við að ég beri fram bón fyrir ykkar hönd. 27 Faðirinn sjálfur elskar ykkur því að þið hafið elskað mig+ og trúið að ég hafi komið sem fulltrúi Guðs.+ 28 Ég kom í heiminn sem fulltrúi föðurins. Nú yfirgef ég heiminn og fer til föðurins.“+
29 Lærisveinarnir sögðu: „Nú talarðu berum orðum en ekki í líkingum. 30 Nú vitum við að þú veist allt og enginn okkar þarf að spyrja þig nokkurs. Þess vegna trúum við að þú sért frá Guði.“ 31 Jesús svaraði: „Trúið þið núna? 32 Sú stund kemur, og er reyndar komin, að þið tvístrist. Þið farið hver og einn heim til ykkar og skiljið mig einan eftir.+ En ég er ekki einn því að faðirinn er með mér.+ 33 Ég hef sagt ykkur þetta svo að þið eigið frið fyrir mína tilstuðlan.+ Þið verðið fyrir mótlæti í heiminum en verið hugrakkir. Ég hef sigrað heiminn.“+