Jósúabók
23 Nú var liðinn langur tími frá því að Jehóva veitti Ísrael frið+ fyrir öllum óvinunum í kring og Jósúa var orðinn gamall og aldurhniginn.+ 2 Hann kallaði saman allan Ísrael,+ öldunga hans, höfðingja, dómara og umsjónarmenn,+ og sagði: „Ég er orðinn gamall og aldurhniginn. 3 Þið hafið sjálfir séð hvernig Jehóva Guð ykkar fór með allar þessar þjóðir ykkar vegna. Það var Jehóva Guð ykkar sem barðist fyrir ykkur.+ 4 Ég hrakti burt þjóðirnar+ sem bjuggu á svæðinu frá Jórdan allt að Hafinu mikla* í vestri* og úthlutaði ættkvíslum ykkar+ landinu með hlutkesti.+ Aðrar þjóðir búa enn í landinu en landið tilheyrir ykkur. 5 Það var Jehóva Guð ykkar sem hrakti þær burt undan ykkur+ og rak þær út og þið tókuð land þeirra til eignar eins og Jehóva Guð ykkar lofaði.+
6 Þið verðið að vera hugrakkir og fylgja öllu sem stendur í lögbók+ Móse. Víkið aldrei frá því, hvorki til hægri né vinstri,+ 7 og blandið ekki geði við þjóðirnar+ sem búa enn á meðal ykkar. Þið megið hvorki nefna guði þeirra á nafn+ né sverja við þá og þið megið aldrei þjóna þeim eða krjúpa fyrir þeim.+ 8 Haldið ykkur fast við Jehóva Guð ykkar+ eins og þið hafið gert allt til þessa dags. 9 Jehóva mun hrekja burt undan ykkur miklar og voldugar þjóðir.+ Enginn hefur hingað til getað haldið velli fyrir ykkur.+ 10 Einn ykkar mun veita þúsund eftirför+ því að Jehóva Guð ykkar berst fyrir ykkur+ eins og hann lofaði.+ 11 Verið því stöðugt á verði+ og elskið Jehóva Guð ykkar.+
12 En ef þið yfirgefið hann og snúið ykkur að þeim sem eftir eru af þjóðunum í landinu,+ stofnið til hjúskapartengsla*+ við þá og umgangist þá 13 skuluð þið vita að Jehóva Guð ykkar heldur ekki áfram að hrekja þessar þjóðir burt.+ Þær verða ykkur gildra og snara, svipa á baki ykkar+ og þyrnir í augum ykkar þar til ykkur hefur verið útrýmt úr þessu góða landi sem Jehóva Guð ykkar hefur gefið ykkur.
14 Ég á nú skammt eftir ólifað* og þið vitið af öllu hjarta og allri sál* að ekki eitt orð hefur brugðist af öllum þeim góðu loforðum sem Jehóva Guð ykkar hefur gefið ykkur. Þau hafa öll ræst. Ekki eitt einasta orð hefur brugðist.+ 15 En rétt eins og Jehóva Guð ykkar hefur efnt öll þau góðu loforð sem hann gaf ykkur,+ eins mun Jehóva láta ykkur verða fyrir allri þeirri ógæfu sem hann talaði um og Jehóva Guð ykkar mun útrýma ykkur úr þessu góða landi sem hann gaf ykkur.+ 16 Ef þið rjúfið sáttmálann sem Jehóva Guð ykkar sagði ykkur að halda og þið farið að þjóna öðrum guðum og krjúpið fyrir þeim þá blossar reiði Jehóva upp gegn ykkur+ og ykkur verður snögglega útrýmt úr landinu góða sem hann hefur gefið ykkur.“+