Sálmur
Til tónlistarstjórans. Gittít.* Eftir syni Kóra.+ Söngljóð.
84 Þín mikla tjaldbúð er yndisleg,+
Jehóva hersveitanna.
Hjarta mitt og hold hrópar fagnandi til hins lifandi Guðs.
3 Jafnvel fuglinn finnur sér heimili þar
og svalan gerir sér hreiður.
Þar annast hún unga sína
nálægt stórfenglegu altari þínu, Jehóva hersveitanna,
konungur minn og Guð.
4 Þeir sem búa í húsi þínu eru hamingjusamir.+
Þeir lofa þig stöðugt.+ (Sela)
5 Þeir sem sækja styrk til þín eru hamingjusamir,+
þeir sem þrá í hjarta sér að halda af stað til húss þíns.
7 Þeir styrkjast á göngunni,+
þeir ganga allir fram fyrir Guð á Síon.
8 Jehóva, Guð hersveitanna, heyrðu bæn mína,
hlustaðu, Guð Jakobs. (Sela)
10 Einn dagur í forgörðum þínum er betri en þúsund annars staðar!+
Ég kýs frekar að standa við þröskuldinn í húsi Guðs míns
en að dvelja í tjöldum illskunnar,
11 því að Jehóva Guð er sól+ og skjöldur,+
hann sýnir velvild og virðingu.
12 Jehóva hersveitanna,
sá maður er hamingjusamur sem treystir á þig.+