Bréfið til Hebrea
8 Kjarni málsins er þessi: Við höfum þess konar æðstaprest+ og hann hefur sest hægra megin við hásæti hátignarinnar á himnum.+ 2 Hann þjónar í hinu allra helgasta+ í hinni sönnu tjaldbúð* sem Jehóva* reisti en ekki maður. 3 Allir æðstuprestar eru skipaðir til að bera fram bæði fórnargjafir og sláturfórnir, og það var því líka nauðsynlegt að þessi æðstiprestur hefði eitthvað til að bera fram.+ 4 Ef hann væri á jörðinni væri hann ekki prestur+ því að þar eru nú þegar menn sem bera fram fórnargjafir samkvæmt lögunum. 5 Þessir menn veita heilaga þjónustu sem er eftirmynd og skuggi+ þess sem er á himnum.+ Þetta má líka sjá af þeim fyrirmælum sem Guð gaf Móse þegar hann átti að reisa tjaldbúðina.* Hann sagði: „Gættu þess að gera allt eftir þeirri fyrirmynd sem þér var sýnd á fjallinu.“+ 6 En nú hefur Jesús fengið enn háleitara þjónustustarf því að hann er auk þess milligöngumaður+ betri sáttmála+ sem er löggiltur með betri loforðum.+
7 Ef fyrri sáttmálinn hefði verið óaðfinnanlegur hefði ekki verið þörf fyrir annan.+ 8 En Guð finnur að fólkinu þegar hann segir: „‚Þeir dagar koma,‘ segir Jehóva,* ‚þegar ég geri nýjan sáttmála við Ísraelsmenn og Júdamenn. 9 Hann verður ekki eins og sáttmálinn sem ég gerði við forfeður þeirra daginn sem ég tók í hönd þeirra og leiddi þá út úr Egyptalandi.+ Þeir héldu ekki sáttmála minn og ég hætti því að annast þá,‘ segir Jehóva.*
10 ‚Þetta er sáttmálinn sem ég geri við Ísraelsmenn þegar þessir dagar eru liðnir,‘ segir Jehóva.* ‚Ég legg lög mín í huga þeirra og skrifa þau á hjörtu þeirra.+ Ég verð Guð þeirra og þeir verða fólk mitt.+
11 Enginn þeirra mun þá lengur kenna samlanda sínum eða bróður og segja: „Kynnstu Jehóva,“* því að þeir munu allir þekkja mig, jafnt háir sem lágir. 12 Ég mun fyrirgefa þeim það ranga sem þeir hafa gert og ekki minnast synda þeirra framar.‘“+
13 Með því að tala um „nýjan sáttmála“ gefur hann til kynna að sá fyrri sé úreltur.+ Það sem er að úreldast og fyrnast er við það að hverfa.+