Sálmur
Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð.
2 Þú gafst honum það sem hjarta hans þráði,+
neitaðir honum ekki um það sem varir hans báðu um. (Sela)
4 Hann bað þig um líf og þú gafst honum það,+
langa ævi, já, eilíft líf.
5 Dýrð hans er mikil því að þú bjargaðir honum,+
þú veitir honum vegsemd og tign.
8 Hönd þín nær öllum óvinum þínum,
hægri hönd þín nær þeim sem hata þig.
9 Þú gerir þá að glóandi eldsofni þegar þú birtist þeim á tilsettum tíma.
Jehóva gereyðir þeim í reiði sinni og eldurinn gleypir þá.+
10 Þú afmáir afkvæmi* þeirra af jörðinni,
afkomendur þeirra úr hópi mannanna.
11 Þeir hafa lagt á ráðin gegn þér,+
bruggað launráð sem heppnast þó ekki+
12 því að þú rekur þá á flótta+
þegar þú miðar boganum á þá.
13 Rístu upp, Jehóva, og sýndu styrk þinn.
Við lofum mátt þinn í söng.*