Uppgönguljóð.
120 Ég hrópaði til Jehóva í angist minni+
og hann svaraði mér.+
2 Jehóva, bjargaðu mér frá ljúgandi vörum
og svikulli tungu.
3 Hvað ætlar Guð að gera við þig, þú svikula tunga,+
og hvernig mun hann refsa þér?
4 Með beittum örvum+ hermannsins
og glóandi viðarkolum.+
5 Æ, ég hef þurft að búa sem útlendingur í Mesek!+
Ég hef búið hjá tjöldum Kedars.+
6 Ég hef búið allt of lengi
meðal þeirra sem hata frið.+
7 Ég vil frið en hvað sem ég segi
vilja þeir stríð.