Sálmur
Uppgönguljóð. Eftir Davíð.
122 Ég varð glaður þegar menn sögðu við mig:
„Förum í hús Jehóva.“+
2 Og nú stöndum við hér
í hliðum þínum, Jerúsalem.+
4 Ættkvíslirnar eru farnar þangað,
ættkvíslir Jah,*
eins og Ísrael er minntur á,
til að lofa nafn Jehóva með þökkum.+
6 Biðjið að Jerúsalem njóti friðar.+
Þeir sem elska þig, Jerúsalem, búa við öryggi.
7 Friður ríki innan múra* þinna,
öryggi í virkisturnum þínum.
8 Vegna bræðra minna og félaga segi ég:
„Friður ríki í þér.“
9 Vegna húss Jehóva Guðs okkar+
bið ég þér farsældar.