Míka
mun fjallið sem hús Jehóva stendur á+
verða óbifanlegt og gnæfa yfir hæstu fjallatinda.
Það mun rísa yfir hæðirnar
og þjóðir streyma þangað.+
2 Margar þjóðir munu koma og segja:
„Komið, förum upp á fjall Jehóva,
til húss Guðs Jakobs.+
Hann mun fræða okkur um vegi sína
og við munum ganga á stígum hans,“
því að lög koma* frá Síon
og orð Jehóva frá Jerúsalem.
Þær munu smíða plógjárn úr sverðum sínum
og garðhnífa úr spjótum sínum.+
Engin þjóð mun beita sverði gegn annarri þjóð
né læra hernað framar.+
4 Hver og einn mun sitja* undir sínum vínviði og sínu fíkjutré+
og enginn mun hræða þá+
því að Jehóva hersveitanna hefur talað.
5 Allar aðrar þjóðir ganga hver í nafni síns guðs
en við munum ganga í nafni Jehóva Guðs okkar+ um alla eilífð.
6 „Á þeim degi,“ segir Jehóva,
„mun ég safna saman þeim sem höltruðu
og smala saman hinum dreifðu+
ásamt þeim sem ég beitti hörku.
Jehóva mun ríkja sem konungur þeirra á Síonarfjalli
héðan í frá og að eilífu.
8 Og þú, turn hjarðarinnar,
hæð Síonardóttur,+
hann kemur, hinn upphaflegi* yfirráðaréttur kemur til þín,+
ríkið sem tilheyrir dótturinni Jerúsalem.+
9 Hvers vegna hróparðu?
Áttu engan konung
eða er ráðgjafi þinn horfinn?
Er það þess vegna sem þú kvelst eins og kona í fæðingu?+
10 Þú skalt engjast um og kveina, dóttir Síonar,
eins og kona í fæðingu
því að nú yfirgefur þú borgina og þarft að búa á víðavangi.
Þú ferð alla leið til Babýlonar+
og þar verður þér bjargað,+
þar kaupir Jehóva þig aftur af óvinum þínum.+
11 Nú munu margar þjóðir safnast gegn þér.
Þær segja: ‚Síon verði vanhelguð,
sjáum með eigin augum það sem kemur yfir hana.‘
12 En þær vita ekki hvað Jehóva hefur í huga,
þær skilja ekki fyrirætlanir* hans.
Hann ætlar að safna þeim eins og kornknippum á þreskivöll.
13 Stattu upp til að þreskja, dóttir Síonar,+
því að ég geri horn þín að járni
og klaufir þínar að kopar
og þú skalt mylja margar þjóðir.+
Þú skalt helga Jehóva rangfenginn gróða þeirra
og auðæfi þeirra hinum sanna Drottni allrar jarðarinnar.“+