91 Sá sem býr í skjóli Hins hæsta+
dvelur í skugga Hins almáttuga.+
2 Ég segi við Jehóva: „Þú ert athvarf mitt og virki,+
Guð minn sem ég treysti á.“+
3 Hann bjargar þér frá gildru fuglafangarans,
frá banvænni drepsóttinni.
4 Hann skýlir þér með flugfjöðrum sínum
og undir vængjum hans leitarðu athvarfs.+
Trúfesti hans+ verður skjöldur+ og varnarmúr.
5 Þú þarft ekki að óttast ógnir næturinnar+
né örina sem flýgur að degi,+
6 drepsóttina sem læðist í myrkrinu
né eyðinguna sem geisar um hádegi.
7 Þúsund falla við hlið þér
og tíu þúsund þér á hægri hönd
en það nær ekki til þín.+
8 Þú horfir aðeins á það,
verður vitni að hvernig illum er refsað.
9 Fyrst þú sagðir: „Jehóva er athvarf mitt,“
hefurðu gert Hinn hæsta að bústað þínum.+
10 Engar hörmungar koma yfir þig+
og engin plága nálgast tjald þitt
11 því að hann skipar englum sínum+
að gæta þín á öllum vegum þínum.+
12 Þeir munu bera þig á höndum sér+
til að þú hrasir ekki um stein.+
13 Þú treður á ungljóni og kóbru,
traðkar á fullvaxta ljóni og stórri slöngu.+
14 Guð sagði: „Ég bjarga honum+ þar sem hann elskar mig,
ég vernda hann því að hann þekkir nafn mitt.+
15 Hann kallar á mig og ég svara honum.+
Ég verð með honum á erfiðum tímum.+
Ég bjarga honum og upphef hann.
16 Ég gef honum langa ævi+
og læt hann sjá að ég bjarga.“+