Esekíel
4 Þú mannssonur, taktu múrstein og settu hann fyrir framan þig. Ristu á hann borg – Jerúsalem. 2 Gerðu umsátur um hana,+ reistu umsáturs- og árásarvirki gegn henni+ og settu upp herbúðir og safnaðu múrbrjótum í kringum hana.+ 3 Taktu bökunarplötu úr járni og komdu henni fyrir eins og járnvegg milli þín og borgarinnar. Snúðu andlitinu að henni og hún verður umsetin. Þú átt að sitja um hana. Þetta er tákn handa Ísraelsmönnum.+
4 Leggstu síðan á vinstri hliðina og taktu á þig sekt Ísraels.+ Þú skalt bera sekt fólksins jafn marga daga og þú liggur á þeirri hlið. 5 Ég legg á þig að gera þetta í 390 daga en það samsvarar þeim árafjölda sem fólkið syndgar gegn mér,+ og þannig skaltu bera sekt Ísraels.
6 Þegar þeir dagar eru á enda skaltu leggjast á hægri hliðina og bera sekt Júda+ í 40 daga. Ég hef gefið þér dag fyrir ár, já, dag fyrir ár. 7 Þú skalt snúa andlitinu að hinni umsetnu Jerúsalem+ og spá gegn henni með berum handlegg.
8 Ég bind þig með reipum svo að þú getir ekki snúið þér af annarri hliðinni á hina fyrr en þú hefur lokið umsátursdögunum.
9 Taktu hveiti, bygg, bóndabaunir, linsubaunir, hirsi og spelt, settu það í skál og gerðu þér brauð úr því. Þú skalt borða það alla dagana 390 sem þú liggur á hliðinni.+ 10 Vigtaðu handa þér 20 sikla* af brauði á dag og borðaðu það á ákveðnum tímum dags.
11 Mældu þér vatn að drekka, sjötta hluta úr hín.* Þú skalt drekka það á ákveðnum tímum dags.
12 Borðaðu brauðið eins og það væri kringlótt byggbrauð. Bakaðu það fyrir allra augum og notaðu til þess þurrkaðan mannasaur.“ 13 Jehóva hélt áfram: „Þannig munu Ísraelsmenn borða brauð sitt meðal þjóðanna sem ég hrek þá til – óhreint.“+
14 Þá sagði ég: „Æ nei, alvaldur Drottinn Jehóva! Allt frá unga aldri hef ég ekki óhreinkað mig með því að borða kjöt af sjálfdauðu eða dýri sem villidýr hefur rifið,+ og óhreint* kjöt hefur ekki komið inn fyrir varir mínar.“+
15 Hann svaraði: „Gott og vel, ég leyfi þér að nota kúamykju í stað mannasaurs til að baka brauðið.“ 16 Síðan sagði hann: „Mannssonur, ég loka fyrir aðgengi að mat* í Jerúsalem.+ Menn munu borða vigtaðan brauðskammt sinn kvíðafullir+ og drekka mældan vatnsskammt sinn skelfingu lostnir.+ 17 Þetta kemur yfir þá til að þeir horfi angistarfullir hver á annan út af brauð- og vatnsskortinum og veslist upp vegna syndar sinnar.