Jeremía
9 Æ, hvað ég vildi að höfuð mitt væri tjörn,
augu mín táralind!+
Þá gréti ég dag og nótt
yfir hinum föllnu meðal þjóðar minnar.
2 Ég vildi að ég vissi um húsaskjól fyrir ferðalanga í óbyggðunum!
Þá yfirgæfi ég þjóð mína og færi burt frá henni
því að þeir fremja allir hjúskaparbrot+
og eru svikahyski.
3 Þeir spenna tunguna eins og boga,
lygar ríkja í landinu en ekki trygglyndi.+
„Þeir fremja hvert illskuverkið á fætur öðru
og taka ekkert mark á mér,“+ segir Jehóva.
4 „Varið ykkur hver á öðrum
og treystið ekki einu sinni bróður ykkar
því að hver einasti bróðir er svikari+
og hver einasti vinur rógberi.+
5 Þeir blekkja allir hver annan
og enginn segir sannleikann.
Þeir hafa þjálfað tungu sína í að fara með lygar,+
þeir strita við að gera það sem er rangt.
6 Þú býrð mitt á meðal svikara.
Þeir ljúga og vilja ekki þekkja mig,“ segir Jehóva.
7 Þess vegna segir Jehóva hersveitanna:
„Ég ætla að bræða þá og reyna þá+
því að hvað annað get ég gert við dótturina, þjóð mína?
8 Tunga þeirra er banvæn ör sem fer með blekkingar.
Með munninum tala þeir um frið við náunga sinn
en í hjartanu íhuga þeir launsátur.“
9 „Ætti ég ekki að draga þá til ábyrgðar fyrir þetta?“ segir Jehóva.
„Ætti ég ekki að hefna mín á þjóð sem hegðar sér svona?+
10 Ég græt og kveina yfir fjöllunum
og syng sorgarljóð vegna beitilandanna í óbyggðunum
því að þau eru sviðin og enginn fer þar um
og menn heyra ekki lengur í búfénu.
Fuglar himins og villidýrin eru flúin, þau eru á bak og burt.+
12 Hver er nógu vitur til að skilja þetta?
Við hvern hefur Jehóva talað svo að hann geti boðað það?
Hvers vegna er landið í eyði?
Hvers vegna er það sviðið eins og óbyggðirnar
svo að enginn fer þar um?“
13 Jehóva svaraði: „Vegna þess að þeir hafa hafnað lögunum* sem ég gaf þeim. Þeir fylgdu þeim ekki og hlýddu mér ekki 14 heldur þrjóskuðust við og fylgdu sínu eigin hjarta.+ Þeir tilbáðu Baalslíkneskin eins og feður þeirra höfðu kennt þeim.+ 15 Þess vegna segir Jehóva hersveitanna, Guð Ísraels: ‚Ég læt þessa þjóð borða malurt og drekka eitrað vatn.+ 16 Ég tvístra þeim meðal þjóða sem hvorki þeir né feður þeirra þekktu+ og sendi sverð á eftir þeim þar til ég hef útrýmt þeim.‘+
17 Jehóva hersveitanna segir:
‚Sýnið skynsemi.
Kallið á konurnar sem syngja sorgarljóð+
og sendið eftir grátkonunum færu.
18 Þær skulu flýta sér og hefja harmakvein yfir okkur
svo að augu okkar flói í tárum
og þau streymi niður kinnarnar.+
19 Kveinstafir heyrast frá Síon:+
„Við höfum verið illa leikin!
Skömm okkar er mikil
því að við höfum yfirgefið landið og hús okkar verið jöfnuð við jörðu.“+
20 Þið konur, heyrið orð Jehóva,
eyru ykkar meðtaki orðin af munni hans.
Kennið dætrum ykkar þetta harmkvæði
og kennið hver annarri þetta sorgarljóð+
21 því að dauðinn er kominn inn um glugga okkar,
hann ruddist inn í virkisturna okkar
til að hrifsa burt börnin af strætunum
og unglingana af torgunum.‘+
22 Segðu: ‚Jehóva segir:
„Líkin munu liggja á jörðinni eins og mykja,
eins og nýskorið korn sem liggur eftir kornskurðarmanninn
og enginn tínir upp.“‘“+
23 Jehóva segir:
„Hinn vitri ætti ekki að stæra sig af visku sinni+
né hinn sterki af styrk sínum
né hinn ríki af auði sínum.“+
24 „Sá sem stærir sig ætti frekar að stæra sig af þessu:
að hann skilji og þekki mig,+
að hann viti að ég er Jehóva, sá sem sýnir tryggan kærleika, réttvísi og réttlæti á jörðinni+
því að ég hef yndi af því,“+ segir Jehóva.
25 „Þeir dagar koma,“ segir Jehóva, „þegar ég dreg alla til ábyrgðar sem eru umskornir en samt óumskornir,+ 26 Egypta,+ Júdamenn,+ Edómíta,+ Ammóníta,+ Móabíta+ og alla sem hafa skorið hár sitt við gagnaugun og búa í óbyggðunum,+ því að allar þjóðirnar eru óumskornar og allir Ísraelsmenn eru óumskornir á hjarta.“+