Jobsbók
42 Þá svaraði Job Jehóva:
3 Þú sagðir: ‚Hver er það sem hylur fyrirætlun mína myrkri og talar af vanþekkingu?‘+
Já, ég talaði án þess að skilja
um mál sem eru of háleit fyrir mig og ég þekki ekki.+
4 Þú sagðir: ‚Hlustaðu og ég ætla að tala.
Ég ætla að spyrja þig og þú skalt svara mér.‘+
5 Ég þekkti þig af afspurn
en nú hef ég séð þig með eigin augum.
7 Þegar Jehóva hafði lokið máli sínu við Job sagði Jehóva við Elífas Temaníta:
„Reiði mín logar gegn þér og félögum þínum tveim+ því að þið hafið ekki sagt sannleikann um mig+ eins og Job þjónn minn. 8 Takið nú sjö naut og sjö hrúta, farið til Jobs þjóns míns og færið brennifórn fyrir ykkur. Job þjónn minn mun biðja fyrir ykkur.+ Ég mun hlusta á bæn hans og ekki láta ykkur gjalda heimsku ykkar en þið hafið ekki sagt sannleikann um mig eins og Job þjónn minn.“
9 Elífas Temaníti, Bildad Súaíti og Sófar Naamaíti fóru þá og gerðu það sem Jehóva hafði sagt þeim. Og Jehóva hlustaði á bæn Jobs.
10 Eftir að Job hafði beðið fyrir kunningjum sínum+ batt Jehóva enda á þjáningar hans+ og veitti honum velgengni á ný.* Jehóva gaf honum tvöfalt það sem hann hafði átt áður.+ 11 Allir bræður hans og systur og allir vinir frá fyrri tíð+ komu nú til hans og borðuðu með honum í húsi hans. Þau sýndu honum samúð og hughreystu hann eftir allar hörmungarnar sem Jehóva hafði leyft að kæmu yfir hann. Hvert og eitt þeirra gaf honum einn kesíta* og gullhring.
12 Jehóva blessaði síðari æviár Jobs meira en hin fyrri+ og hann eignaðist 14.000 fjár, 6.000 úlfalda, 1.000 tvíeyki nauta og 1.000 ösnur.+ 13 Hann eignaðist aftur sjö syni og þrjár dætur.+ 14 Fyrstu dótturina nefndi hann Jemímu, aðra Kesíu og þá þriðju Keren Happúk. 15 Hvergi í landinu fundust eins fagrar konur og dætur Jobs og faðir þeirra gaf þeim arf með bræðrum þeirra.
16 Job lifði í 140 ár eftir þetta og fékk að sjá börn sín og barnabörn í fjóra ættliði. 17 Að lokum dó Job eftir langa og góða ævi.*