Esekíel
39 Mannssonur, spáðu gegn Góg+ og segðu við hann: ‚Þetta segir alvaldur Drottinn Jehóva: „Ég held gegn þér, Góg, æðsti höfðingi yfir Mesek og Túbal.+ 2 Ég sný þér við og teymi þig áfram, sæki þig til fjarlægustu norðurslóða+ og leiði þig upp á fjöll Ísraels. 3 Ég slæ bogann úr vinstri hendi þinni og læt örvarnar detta úr þeirri hægri. 4 Þú skalt falla á fjöllum Ísraels,+ þú og allar hersveitir þínar ásamt þjóðunum sem verða með þér. Þú verður að æti handa alls konar ránfuglum og villidýrum jarðar.“‘+
5 ‚Þú munt falla úti á víðavangi+ því að ég hef talað,‘ segir alvaldur Drottinn Jehóva.
6 ‚Ég sendi eld gegn Magóg og þeim sem búa óttalausir á eyjunum,+ og þeir komast að raun um að ég er Jehóva. 7 Ég geri heilagt nafn mitt þekkt meðal fólks míns, Ísraels, og ég leyfi ekki að heilagt nafn mitt verði vanhelgað framar. Þjóðirnar munu skilja að ég er Jehóva,+ Hinn heilagi í Ísrael.‘+
8 ‚Já, þetta kemur fram og það verður,‘ segir alvaldur Drottinn Jehóva. ‚Þetta er dagurinn sem ég hef talað um. 9 Íbúar borganna í Ísrael fara út og kveikja í vopnunum – smáum* og stórum skjöldum, bogum og örvum, kylfum* og spjótum. Þeir nota þau í sjö ár til að kveikja bál.+ 10 Þeir þurfa ekki að safna viði úti á víðavangi né sækja eldivið í skógana því að þeir nota vopnin sem eldsneyti.‘
‚Þeir munu ræna þá sem rændu þá og taka herfang af þeim sem tóku herfang af þeim,‘ segir alvaldur Drottinn Jehóva.
11 ‚Þann dag fæ ég Góg+ legstað í Ísrael, í dalnum sem farið er um austan hafsins, og menn komast ekki lengur um hann. Þar verður Góg og allt hans lið grafið og dalurinn verður kallaður Hamón Góg-dalur.*+ 12 Það tekur Ísraelsmenn sjö mánuði að jarða þá og hreinsa landið.+ 13 Allir landsmenn taka þátt í að jarða þá og það verður þeim til frægðar daginn sem ég geri mig dýrlegan,‘+ segir alvaldur Drottinn Jehóva.
14 ‚Menn verða valdir til að ferðast sífellt um landið og hreinsa það með því að jarða líkin sem liggja þar enn. Þeir halda leitinni áfram í sjö mánuði. 15 Þegar þeir sem ferðast um landið rekast á mannabein skulu þeir merkja staðinn. Grafarmennirnir grafa það síðan í Hamón Góg-dalnum.+ 16 Þar verður einnig borg sem heitir Hamóna.* Og menn munu hreinsa landið.‘+
17 Mannssonur, þetta segir alvaldur Drottinn Jehóva: ‚Segðu við alla fugla og öll villidýr jarðar: „Safnist saman og komið. Safnist saman í kringum fórnina sem ég bý ykkur, mikla fórn á fjöllum Ísraels.+ Þið skuluð éta kjöt og drekka blóð.+ 18 Þið munuð éta kjöt kappa og drekka blóð höfðingja jarðarinnar – hrúta, lamba, geita og nauta – allra alidýra Basans. 19 Þið munuð háma í ykkur fitu og drekka ykkur drukkin af blóði fórnarinnar sem ég bý ykkur.“‘
20 ‚Við borð mitt étið þið nægju ykkar af hestum og vagnstjórum, köppum og alls konar hermönnum,‘+ segir alvaldur Drottinn Jehóva.
21 ‚Ég mun birta dýrð mína meðal þjóðanna og allar þjóðir átta sig á að ég hef fullnægt dómi og sýnt mátt minn* meðal þeirra.+ 22 Þaðan í frá munu Ísraelsmenn skilja að ég er Jehóva Guð þeirra. 23 Og þjóðirnar átta sig á að Ísraelsmenn fóru í útlegð vegna sinnar eigin syndar, þeir voru mér ótrúir.+ Ég huldi því andlit mitt fyrir þeim+ og gaf þá óvinum þeirra á vald+ svo að þeir féllu allir fyrir sverði. 24 Ég fór með þá eins og þeir áttu skilið vegna óhreinleika þeirra og misgerða og huldi andlitið fyrir þeim.‘
25 Þess vegna segir alvaldur Drottinn Jehóva: ‚Ég læt útlæga afkomendur Jakobs snúa aftur heim+ og sýni öllum Ísraelsmönnum miskunn.+ Af brennandi ákafa ver ég heilagt nafn mitt.*+ 26 Eftir að hafa verið auðmýktir fyrir öll svikin við mig+ búa þeir öruggir í landi sínu án þess að nokkur hræði þá.+ 27 Þegar ég flyt þá heim frá þjóðunum og safna þeim saman frá löndum óvina þeirra+ sjá margar þjóðir að ég er heilagur Guð.‘+
28 ‚Þeir komast að raun um að ég er Jehóva Guð þeirra þegar ég sendi þá í útlegð til þjóðanna og safna þeim síðan aftur saman í landi þeirra og skil engan eftir.+ 29 Ég úthelli anda mínum yfir Ísraelsmenn+ og hyl ekki lengur andlitið fyrir þeim,‘+ segir alvaldur Drottinn Jehóva.“