Söngur 61
Þannig ber mér að lifa
Prentuð útgáfa
1. Hvað get ég þér gefið og gjald borgað þér,
það góða líf þakkað sem þú Drottinn gafst mér?
Í skini þíns orðs ég mun skima mitt hjarta
og skoða þann mann sem þú vilt sjá mig skarta.
Að þjóna þér fyrstum er forgangsrétt röð
og fús ég það geri en alls ekki af kvöð.
Af viljugu hjarta ég vil þjóna þér
og vera enn einn sem gleður þig hér.
2. Kenn mér, Guð, að skoða, að kanna og sjá
það hvern mann ég geymi, orðin og verkin tjá.
Þú trúfastur ert þeim sem trúfesti sýna.
Ó, teldu mig með þeim sem gleðja lund þína.
(Sjá einnig Sálm. 18:26; 116:12; 119:37; Orðskv. 11:20.)