Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Hver á að stjórna heiminum?
    Gefðu gaum að spádómi Daníelsbókar
    • Kýrus bjó sig nú undir átök við hina voldugu Babýlon og tók þaðan í frá þátt í að uppfylla biblíuspádóma. Fyrir munn spámannsins Jesaja hafði Jehóva nafngreint Kýrus næstum tveim öldum áður sem valdhafann er sigra myndi Babýlon og frelsa Gyðinga úr ánauð. Það er í krafti þessarar útnefningar sem Ritningin kallar Kýrus ‚smurðan‘ þjón Jehóva. — Jesaja 44:26-28.

  • Hver á að stjórna heiminum?
    Gefðu gaum að spádómi Daníelsbókar
    • Fyrir Gyðingana í Babýlon þýddi sigur Kýrusar langþráða lausn úr ánauð og endi 70 áranna sem heimaland þeirra lá í eyði. Gleðin hlýtur að hafa gagntekið þá þegar Kýrus gaf út þá tilskipun að þeir mættu snúa heim til Jerúsalem og endurreisa musterið. Kýrus afhenti þeim einnig hin dýrmætu musterisker sem Nebúkadnesar hafði flutt til Babýlonar, veitti konunglegt leyfi fyrir innflutningi á timbri frá Líbanon og heimilaði að byggingarkostnaður yrði greiddur úr sjóðum konungshallarinnar. — Esrabók 1:1-11; 6:3-5.

Íslensk rit (1985-2027)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila