-
Þú getur verið vinur JehóvaVon um bjarta framtíð – biblíunámskeið
-
-
5. Það sem Jehóva biður vini sína um
Við væntum yfirleitt einhvers af vinum okkar.
Hvernig vilt þú að vinir þínir komi fram við þig?
Lesið 1. Jóhannesarbréf 5:3 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Hvers ætlast Jehóva til af vinum sínum?
Við getum þurft að breyta skapgerð okkar og hegðun til að hlýða Jehóva. Lesið Jesaja 48:17, 18 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Hvers vegna biður Jehóva vini sína um að gera breytingar?
-
-
Hvernig getum við sýnt að við elskum Jehóva?Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
-
-
KAFLI 34
Hvernig getum við sýnt að við elskum Jehóva?
Finnst þér þú nánari Guði eftir að þú byrjaðir að kynna þér Biblíuna? Langar þig til að halda áfram að styrkja vináttuna við hann? Mundu þá að eftir því sem Jehóva sér kærleika þinn til sín vaxa elskar hann þig heitar og lætur sér annara um þig. Hvernig geturðu sýnt honum að þú elskir hann?
1. Hvernig sýnum við Jehóva að við elskum hann?
Við sýnum að við elskum Jehóva með því að hlýða honum. (Lestu 1. Jóhannesarbréf 5:3.) Hann neyðir engan til að hlýða sér. Öllu heldur gefur hann hverju og einu okkar tækifæri til að velja hvort við hlýðum honum eða ekki. Hvers vegna? Jehóva vill að við ‚hlýðum í einlægni‘. (Rómverjabréfið 6:17) Hann vill að þú hlýðir sér vegna þess að þú elskar hann, ekki vegna þess að þú verður að gera það. Markmið 3. og 4. hluta þessarar bókar er að hjálpa þér að sýna Jehóva að þú elskar hann með því að gera það sem honum þóknast og forðast það sem honum mislíkar.
2. Hvers vegna getur verið erfitt að sýna að við elskum Jehóva?
„Hinn réttláti lendir í mörgum raunum.“ (Sálmur 34:19) Við glímum öll við eigin ófullkomleika. Og við gætum líka staðið frammi fyrir fjárhagserfiðleikum, óréttlæti og öðrum vandamálum. Það getur verið erfitt að gera það sem Jehóva biður okkur um þegar við glímum við erfiðleika. Það getur verið auðveldara að fara röngu leiðina. En ef þú gerir trúfastur það sem Jehóva biður þig um sýnirðu að þú elskar hann meira en nokkuð annað. Þú sannar að þú sért honum trúr. Og hann mun sýna þér trúfesti á móti. Hann yfirgefur þig aldrei. – Lestu Sálm 4:3.
KAFAÐU DÝPRA
Kynntu þér hvers vegna hlýðni þín skiptir Jehóva máli og hvað getur hjálpað þér að sýna honum trúfesti.
3. Mál sem snertir þig
Í Jobsbók kemur fram að Satan ásakaði ekki aðeins Job heldur alla sem vilja þjóna Jehóva. Lesið Jobsbók 1:1, 6–2:10 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Hverja sagði Satan vera ástæðuna fyrir því að Job hlýddi Jehóva? – Sjá Jobsbók 1:9–11.
Hverju heldur Satan fram um alla menn, þar á meðal þig? – Sjá Jobsbók 2:4.
Lesið Jobsbók 27:5b og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Hvernig sannaði Job að hann elskaði Jehóva í raun og veru?
4. Gleddu hjarta Jehóva
Lesið Orðskviðina 27:11 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Hvernig líður Jehóva þegar þú ert vitur og hlýðir honum? Hvers vegna?
5. Þú getur verið Jehóva trúr
Kærleikur okkar til Jehóva fær okkur til að segja öðrum frá honum. Hollusta okkar við hann fær okkur til að gera það jafnvel þegar það er erfitt. Spilið MYNDBANDIÐ og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Finnst þér stundum erfitt að segja öðrum frá Jehóva?
Hvað hjálpaði Grayson að sigrast á óttanum?
Það er auðveldara að vera Jehóva trúr þegar við elskum það sem hann elskar og hötum það sem hann hatar. Lesið Sálm 97:10 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Geturðu nefnt dæmi um það sem Jehóva elskar og um það sem hann hatar út frá því sem þú hefur lært?
Hvernig geturðu lært að elska hið góða og að hata hið illa?
6. Það er okkur til góðs að hlýða Jehóva
Það er alltaf best að hlýða Jehóva. Lesið Jesaja 48:17, 18 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Finnst þér við geta treyst því að Jehóva viti alltaf hvað er best fyrir okkur? Hvers vegna?
Hvaða gagn hefurðu haft af því hingað til að kynnast Biblíunni og Jehóva, hinum sanna Guði?
SUMIR SEGJA: „Það skiptir Guð ekki máli hvað ég geri.“
Hvaða biblíuvers gætirðu notað til að sýna að það sem við gerum snertir Jehóva?
SAMANTEKT
Við getum sýnt að við elskum Jehóva með því að hlýða honum og vera honum trú þrátt fyrir erfiðleika.
Upprifjun
Hvað lærðir þú af fordæmi Jobs?
Hvernig ætlar þú að sýna að þú elskar Jehóva?
Hvað hjálpar þér að vera Jehóva trúr?
KANNAÐU
Sjáðu hvernig þú getur verið trúr Jehóva og söfnuðinum.
Lestu nánar um ásakanir Satans gegn mönnunum.
„Job er ráðvandur Guði“ (Biblían – hver er boðskapur hennar?, 6. kafli)
Sjáðu hvernig jafnvel börn geta sýnt að þau elska Jehóva.
Hvernig getur unglingur verið Guði trúr þegar hann verður fyrir hópþrýstingi frá jafnöldrum sínum?
-