VIÐAUKI
Jesús Kristur — hinn fyrirheitni Messías
TIL að auðvelda okkur að bera kennsl á frelsarann Messías innblés Jehóva Guð mörgum spámönnum Biblíunnar að gefa ítarlegar upplýsingar um fæðingu hans, þjónustu og dauða. Allir spádómarnir rættust á Jesú Kristi. Þeir eru ótrúlega nákvæmir og ítarlegir. Við skulum sjá dæmi um þetta með því að líta á fáeina spádóma um fæðingu Messíasar og bernsku hans.
Jesaja spámaður upplýsti að Messías myndi koma af Davíð konungi. (Jesaja 9:7) Sú varð líka raunin. — Matteus 1:1, 6-17.
Míka, annar spámaður Guðs, sagði fyrir að barnið myndi fæðast í „Betlehem Efrata“ og verða drottnari þegar fram liðu stundir. (Míka 5:1) Þegar Jesús fæddist voru til tveir bæir í Ísrael sem hétu Betlehem. Annar var nálægt Nasaret, norðarlega í landinu, en hinn nálægt Jerúsalem í Júda. Síðarnefndi bærinn var fyrr á tímum kallaður Efrata. Þar fæddist Jesús, rétt eins og sagði í spádóminum. — Matteus 2:1.
Í öðrum biblíuspádómi segir að sonur Guðs yrði kallaður „frá Egyptalandi“. Farið var með Jesú ungan til Egyptalands en fjölskyldan sneri aftur til Ísraels eftir að Heródes var dáinn. Þannig rættist spádómurinn. — Hósea 11:1; Matteus 2:15.
Í töflunni „Spádómar um Messías“ eru tilteknir ritningarstaðir í dálknum „Spádómur“ þar sem fram koma ýmsar upplýsingar um Messías. Berðu þá saman við ritningarstaðina í dálknum „Uppfylling“. Það styrkir trú þína á að orð Guðs sé satt og rétt.
Þegar þú skoðar ritningarstaðina skaltu hafa í huga að spádómarnir voru skrifaðir öldum áður en Jesús fæddist. Sjálfur sagði hann: „Rætast [átti] allt það, sem um mig er ritað í lögmáli Móse, spámönnunum og sálmunum.“ (Lúkas 24:44) Og þú getur notað biblíuna þína til að sannreyna að þeir rættust í smáatriðum!