Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Blessun Jehóva hún auðgar
    Varðturninn – 1987 | 1. janúar
    • 5. Hvernig leit Jesús á auðæfi?

      5 Jesús vakti oft máls á þeirri hættu sem mönnum stafaði af fé og auði, því að sú hætta blasti við öllum, jafnt auðugum sem fátækum. (Matteus 6:24-32; Lúkas 6:24; 12:15-21) Við hvetjum þig til að gera sjálfsrannsókn með því að hugleiða það sem Jesús sagði við eitt tækifæri, eins og frá því er skýrt í Matteusi 19:16-24; Markúsi 10:17-30 og Lúkasi 18:18-30. Væri ekki ráð að staldra við eitt augnablik og lesa eina þessara frásagna eða allar?

  • Blessun Jehóva hún auðgar
    Varðturninn – 1987 | 1. janúar
    • 7 Eftir þetta sagði Jesús: „Hve torvelt er þeim, sem auðinn hafa, að ganga inn í Guðs ríki. Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.“ (Lúkas 18:24, 25) Áttu þessi heilræði erindi aðeins til þessa ríka höfðingja? Eiga þau líka við þig, hvort sem þú ert auðugur eða fátækur? Við skulum athuga það nánar.

      8. (a) Við hvað má líkja þessum unga höfðingja? (b) Hvað var að hjá honum og hvers vegna ættum við að láta okkur það varða?

      8 Það kann að hjálpa þér að skilja aðstöðu unga höfðingjans ef þú hugsar þér nútímahliðstæðu — hreinlífan, ungan kristinn mann með góða biblíuþekkingu, gott siðferði, kominn úr auðugri fjölskyldu. Þú gætir öfundað slíkan mann. En Jesús fann að eitt veigamikið atriði vantaði hjá þessum unga Gyðingi: Auður hans eða eignir voru honum of mikilvægar. Því gaf Jesús þau ráð sem raun ber vitni. Þú sérð því hvers vegna þessi frásögn Biblíunnar á erindi til okkar allra, bæði efnaðra og fátækra. Peningar og eignir gætu farið að skipta okkur of miklu máli, hvort heldur við eigum þá eða hreinlega langar til að eignast þá.

      9. Hvernig vitum við að Jesús var ekki að fordæma auðlegð sem slíka?

      9 Jesús var ekki að segja að efnaður maður gæti ekki þjónað Guði. Margir hafa gert það. Þessi ungi Gyðingur hafði gert það — að vissu marki. Þá er að nefna tollheimtumanninn Sakkeus sem var „auðugur.“ (Lúkas 19:2-10) Sumir smurðra kristinna manna á fyrstu öld voru í góðum efnum og var það því sérstök áskorun fyrir þá að vera „örlátir, fúsir að miðla öðrum.“ (1. Tímóteusarbréf 6:17, 18; Jakobsbréfið 1:9, 10) Og til eru efnaðir kristnir menn nú á dögum. Þeir hafa oft gefið örlátlega til stuðnings starfi Guðsríkis, opnað heimili sín til að halda mætti þar samkomur og notað bifreiðar sínar í þjónustunni. Hvers vegna sagði Jesús þá það sem hann gerði um ríka manninn og úlfaldann? Hvað getum við lært af því?

      10. Hvað getum við ályktað af heilræðum Jesú við þetta tækifæri?

      10 Eins og þú gerir þér ljóst er það eitt að byrja að þjóna Guði en annað að reynast trúfastur allt til enda. (Matteus 24:13; Filippíbréfið 3:12-14) Jesús kann að hafa haft það í huga þegar hann sagði: „Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.“ (Markús 10:25) Úlfaldi gæti aldrei troðið sér í gegnum örsmátt nálarauga svo að Jesús var augljóslega að nota ýkjur sem ekki bar að taka bókstaflega. Þessi líking sýnir þó hversu erfitt það er fyrir ríkan mann að gera ákveðinn hlut. Hvað? Ekki aðeins að byrja að þjóna Guði heldur „að komast inn í Guðs ríki,“ að hljóta í raun eilíft líf. Hvernig sem þú stendur fjárhagslega geta ráð Jesú verið hjálpleg hugsun þinni, andlegum framförum og því að þú hljótir eilíft líf.

Íslensk rit (1985-2027)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila