SÖNGUR 68
Sáum sæði sannleikans
Prentuð útgáfa
1. Kom öll, fylgjum meistara okkar,
af einbeitni hlýðum við nú.
Því hann okkur hjálpar í starfi
er hlustum á leiðsögn hans trú.
Það sannleikans sæði vaxtarþrótt á
sem sáð er í frjósama jörð.
Af trúfesti gefðu þitt besta að gjöf
og það gerðu við létt kjör og hörð.
2. En árangur af þínu starfi,
hann oft kominn er undir þér.
Því sá sem á sannleikann hlýðir
þarf samherja í lið með sér.
Ef annríkt þeir eiga, efast um Guð,
þú álagið getur þeim létt.
Og sannleikans sæði þá gleður þig mjög
er þú sérð að það vex jafnt og þétt.
(Sjá einnig Matt. 13:19-23; 22:37.)