FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS | JOBSBÓK 6-10
Hinn trúi Job tjáir angist sína
Job var blásnauður, sorgmæddur og alvarlega veikur en hélt fast við ráðvendni sína. Satan reyndi þá að draga úr honum kjark til að brjóta niður ráðvendni hans. Þrír svokallaðir félagar hans komu í heimsókn. Fyrst sýndu þeir honum samúð meðan aðrir sáu til. Síðan sátu þeir þegjandi með Job í sjö daga án þess svo mikið sem segja eitt huggunarorð. Síðan fluttu þeir ræður sem innihéldu að stórum hluta ákærur og alvarlegar ásakanir.
Job var áfram ráðvandur Jehóva þrátt fyrir gífurlega erfiðleika
Job var bugaður af sorg og sá því hlutina ekki í réttu ljósi. Hann dró ranglega þá ályktun að Guði stæði á sama hvort hann væri trúfastur.
Job var niðurbrotinn og hugleiddi ekki aðra möguleika sem ástæðu fyrir þjáningum sínum.
Enda þótt Job væri harmi sleginn talaði hann við ákærendur sína um kærleika sinn til Jehóva.