Sálmur
Til tónlistarstjórans. Eftir Davíð.
14 Heimskinginn segir í hjarta sínu:
„Jehóva er ekki til.“+
Verk þeirra eru spillt og hegðun þeirra andstyggileg,
enginn gerir það sem er gott.+
2 En Jehóva lítur á mennina af himni ofan
til að sjá hvort nokkur sé skynsamur, hvort nokkur leiti Jehóva.+
3 Þeir hafa allir farið af réttri leið,+
þeir eru allir spilltir.
Enginn gerir það sem er gott,
ekki einn einasti.
4 Skilja þeir ekki neitt, þessir illvirkjar?
Þeir gleypa í sig fólk mitt eins og brauð
og ákalla ekki Jehóva.
6 Þið illvirkjar viljið gera áform hins bágstadda að engu
en Jehóva er athvarf hans.+
7 Ó, að Ísrael berist hjálp frá Síon!+
Jakob gleðjist, Ísrael fagni
þegar Jehóva flytur herleitt fólk sitt aftur heim.