Harmljóðin
5 Mundu, Jehóva, hvað hefur gengið yfir okkur.
Líttu á og sjáðu niðurlægingu okkar.+
2 Erfðaland okkar er fallið í hendur ókunnugra, hús okkar í hendur útlendinga.+
3 Við erum orðin munaðarlaus, föðurlaus. Mæður okkar eru eins og ekkjur.+
4 Við þurfum að borga fyrir eigið drykkjarvatn+ og kaupa okkar eigin við.
5 Þeir sem elta okkur anda ofan í hálsmálið á okkur,
við erum örþreytt en fáum enga hvíld.+
6 Við réttum út höndina til Egyptalands+ og Assýríu+ til að fá brauð að borða.
7 Forfeður okkar sem syndguðu eru horfnir en við þurfum að bera syndir þeirra.
8 Nú ríkja þjónar yfir okkur, enginn er til að bjarga okkur úr höndum þeirra.
9 Við hættum lífinu við að sækja brauð+ því að sverðið herjar í óbyggðunum.
10 Húðin á okkur er orðin heit sem ofn vegna skerandi hungurs.+
11 Þeir hafa svívirt* eiginkonurnar í Síon, meyjarnar í borgum Júda.+
12 Höfðingjar voru hengdir upp á annarri hendi+ og öldungum engin virðing sýnd.+
13 Ungir menn bera handkvörnina og drengir hrasa undir viðarbyrðunum.
14 Öldungarnir eru horfnir úr borgarhliðinu,+ ungu mennirnir hættir að leika tónlist.+
15 Gleðin er horfin úr hjörtum okkar, dansinn er vikinn fyrir sorg.+
16 Kórónan er fallin af höfði okkar. Það er úti um okkur því að við höfum syndgað!
17 Þess vegna er hjarta okkar sjúkt+
og þess vegna hafa augu okkar daprast,+
18 vegna Síonarfjalls sem er í eyði,+ nú eru refir þar á ferli.
19 En þú, Jehóva, situr í hásæti þínu að eilífu.
Hásæti þitt stendur kynslóð eftir kynslóð.+
20 Hvers vegna viltu gleyma okkur að eilífu, yfirgefa okkur í svo langan tíma?+
21 Leiddu okkur aftur til þín, Jehóva, þá snúum við til þín þegar í stað,+
láttu allt verða eins og í gamla daga.+
22 Þú hefur hafnað okkur með öllu
og ert enn bálreiður út í okkur.+