Daníel
1 Á þriðja stjórnarári Jójakíms+ Júdakonungs kom Nebúkadnesar konungur Babýlonar til Jerúsalem og settist um hana.+ 2 Jehóva gaf Jójakím Júdakonung í hendur hans+ og einnig nokkuð af áhöldunum úr húsi* hins sanna Guðs. Nebúkadnesar flutti áhöldin til Sínearlands*+ í hús* guðs síns og kom þeim fyrir í fjárhirslu guðs síns.+
3 Konungur skipaði Aspenasi hirðstjóra sínum að koma með nokkra Ísraelsmenn, þar á meðal af konungsættinni og af aðalsættum.+ 4 Þetta áttu að vera ungir menn* sem voru lýtalausir og myndarlegir, bjuggu yfir visku, þekkingu og skilningi+ og voru hæfir til að þjóna í konungshöllinni. Hann átti að kenna þeim að skrifa og tala mál* Kaldea. 5 Konungur ákvað að þeir skyldu fá daglegan skammt af kræsingum sínum og víninu sem hann drakk. Þeir áttu að fá þriggja ára menntun* og eftir það myndu þeir þjóna við hirð konungs.
6 Í hópi þeirra voru nokkrir af ættkvísl Júda, þeir Daníel,*+ Hananja,* Mísael* og Asarja.*+ 7 Hirðstjórinn gaf þeim ný nöfn.* Hann nefndi Daníel Beltsasar,+ Hananja Sadrak, Mísael Mesak og Asarja Abed Negó.+
8 En Daníel var ákveðinn í hjarta sínu að óhreinka sig hvorki á kræsingum konungs né víninu sem hann drakk. Hann bað því hirðstjórann að fá að sleppa við að óhreinka sig á þennan hátt. 9 Hinn sanni Guð sá til þess að hirðstjórinn sýndi Daníel vinsemd og samúð.*+ 10 En hirðstjórinn sagði við Daníel: „Ég er hræddur við herra minn, konunginn, sem hefur ákveðið hvað þið eigið að borða og drekka. Hvað ef hann sæi að þið lituð verr út en hinir unglingarnir* á ykkar aldri? Þið mynduð baka mér* sekt frammi fyrir konungi.“ 11 Þá sagði Daníel við gæslumanninn sem hirðstjórinn hafði sett yfir Daníel, Hananja, Mísael og Asarja: 12 „Reyndu þjóna þína í tíu daga. Láttu gefa okkur grænmeti að borða og vatn að drekka. 13 Berðu síðan saman útlit okkar og unglinganna* sem borða kræsingar konungs og láttu niðurstöðuna ráða hvað þú gerir við okkur.“
14 Hann féllst á tillögu þeirra og reyndi þá í tíu daga. 15 Að tíu dögum liðnum litu þeir betur út og voru hraustlegri* en allir unglingarnir* sem borðuðu kræsingar konungs. 16 Gæslumaðurinn fór þá með kræsingarnar og vínið burt frá þeim og gaf þeim grænmeti. 17 Hinn sanni Guð veitti þessum fjórum ungu mönnum* þekkingu og skilning á alls konar ritverkum* og speki, og Daníel gat ráðið alls konar sýnir og drauma.+
18 Þegar tíminn var liðinn sem Nebúkadnesar hafði tiltekið+ leiddi hirðstjórinn þá fram fyrir konung. 19 Konungur ræddi við þá og meðal þeirra allra reyndist enginn eins og Daníel, Hananja, Mísael og Asarja.+ Þeir urðu því um kyrrt og þjónuðu við hirð konungs. 20 Í hvert skipti sem konungur spurði þá um eitthvað sem útheimti visku og skilning komst hann að raun um að þeir voru tíu sinnum betri en allir galdraprestar og særingamenn+ í öllu ríki hans. 21 Daníel dvaldist þar allt fram á fyrsta stjórnarár Kýrusar konungs.+