-
4. Mósebók 29:12Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
12 Á 15. degi sjöunda mánaðarins skuluð þið halda heilaga samkomu. Þið megið ekki vinna neina erfiðisvinnu. Þið skuluð halda Jehóva hátíð í sjö daga.+
-
-
5. Mósebók 16:13Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
13 Haltu laufskálahátíðina+ í sjö daga þegar þú hefur hirt uppskeruna af þreskivelli þínum og úr olíu- og vínpressu þinni.
-
-
Nehemíabók 8:14–18Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
14 Þá uppgötvuðu þeir að í lögunum sem Jehóva hafði sett fyrir milligöngu Móse stóð að Ísraelsmenn ættu að búa í laufskálum* á hátíðinni í sjöunda mánuðinum.+ 15 Þar stóð að þeir ættu að boða+ og tilkynna í öllum borgum sínum og í Jerúsalem: „Farið upp í fjalllendið og sækið laufgaðar greinar af ólívutrjám, furutrjám, myrtutrjám, pálmum og öðrum trjám til að gera laufskála eins og kveðið er á um.“
16 Fólkið fór þá og sótti greinar til að gera sér laufskála, hver á húsþaki sínu, í garði sínum, í forgörðum húss hins sanna Guðs,+ á torginu við Vatnshliðið+ eða á torginu við Efraímshliðið.+ 17 Allir sem höfðu komið heim úr útlegðinni gerðu sér laufskála og bjuggu í þeim en það höfðu Ísraelsmenn ekki gert frá því á dögum Jósúa+ Núnssonar allt til þessa dags. Gleðin var mjög mikil.+ 18 Lesið var daglega upp úr lögbók hins sanna Guðs,+ frá fyrsta degi til hins síðasta. Hátíðin var haldin í sjö daga og á áttunda degi var haldin hátíðarsamkoma eins og kveðið var á um.+
-