20 Vínið er spottari+ og áfengið óhemja,+
sá sem lætur það leiða sig afvega er óvitur.+
2 Óttinn við konung er eins og ljónsöskur,+
sá sem reitir hann til reiði hættir lífi sínu.+
3 Það er lofsvert að forðast deilur,+
aðeins heimskingjar dragast inn í þær.+
4 Letinginn plægir ekki að vetri.
Þess vegna betlar hann á uppskerutímanum þegar hann á ekki neitt.+
5 Hugsanir mannshjartans eru eins og djúp vötn
en hygginn maður dregur þær fram.
6 Margir segjast vera kærleiksríkir
en hver getur fundið tryggan vin?
7 Hinn réttláti varðveitir ráðvendni sína,+
börnin hans verða hamingjusöm.+
8 Þegar konungur situr í hásæti til að dæma+
skilur hann allt illt frá með augnaráðinu.+
9 Hver getur sagt: „Ég hef hreinsað hjarta mitt,+
ég er hreinn af synd“?+
10 Fölsuð lóð og röng mál,
hvort tveggja er andstyggð í augum Jehóva.+
11 Jafnvel barn sýnir með hegðun sinni
hvort verk þess eru hrein og réttlát.+
12 Eyrað sem heyrir og augað sem sér,
hvort tveggja er verk Jehóva.+
13 Elskaðu ekki svefninn svo að þú verðir ekki fátækur.+
Opnaðu augun, þá muntu borða nægju þína.+
14 „Lélegt, lélegt!“ segir kaupandinn
en stærir sig síðan af kaupunum þegar hann gengur burt.+
15 Til er gull og mikið af kórölum
en dýrmætari eru þó varir sem miðla þekkingu.+
16 Taktu skikkjuna af manni sem hefur gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan.+
Taktu veð af honum ef hann gerði það fyrir útlenda konu.+
17 Illa fengið brauð bragðast vel
en eftir á fyllist munnurinn af möl.+
18 Áformin heppnast ef málin eru rædd,+
þiggðu viturlega leiðsögn þegar þú ferð í stríð.+
19 Rógberinn gengur um og ljóstrar upp leyndarmálum,+
forðastu félagsskap við slúðurgjarnan mann.
20 Ef einhver bölvar föður sínum og móður
slokknar á lampa hans þegar myrkrið færist yfir.+
21 Arfur sem fæst með græðgi
færir ekki blessun til lengdar.+
22 Segðu ekki: „Ég ætla að hefna mín!“+
Vonaðu á Jehóva+ og hann bjargar þér.+
23 Jehóva hefur andstyggð á fölsuðum lóðum
og svikavog er ekki góð.
24 Jehóva stýrir skrefum mannsins.+
Hvernig getur maðurinn skilið veg sinn?
25 Það er snara fyrir manninn að hrópa í fljótfærni: „Helgað!“+
og hugleiða fyrst eftir á hverju hann hefur heitið.+
26 Vitur konungur skilur hina illu frá+
og keyrir þreskihjólið yfir þá.+
27 Orð mannsins eru lampi Jehóva
sem kannar hvað býr innst inni.
28 Tryggur kærleikur og trúfesti verndar konunginn,+
með tryggum kærleika styður hann hásæti sitt.+
29 Kraftur ungra manna er prýði þeirra+
og grátt hár fegurð þeirra sem eldri eru.+
30 Mar og sár reka burt illsku+
og högg hreinsa hjartað.