Síðari Konungabók
25 Á níunda stjórnarári Sedekía, á tíunda degi tíunda mánaðarins, kom Nebúkadnesar+ konungur Babýlonar til Jerúsalem+ ásamt öllum her sínum. Hann settist um borgina og reisti árásarvirki allt í kringum hana.+ 2 Umsátrið stóð fram á 11. stjórnarár Sedekía konungs. 3 Á níunda degi fjórða mánaðarins, þegar hungursneyðin var orðin mikil+ í borginni og landsmenn höfðu ekkert að borða,+ 4 var brotið skarð í borgarmúrinn.+ Um nóttina, meðan Kaldear umkringdu borgina, flúðu allir hermennirnir út um hliðið milli múranna tveggja við garð konungs og konungurinn flúði í átt að Araba.+ 5 En her Kaldea elti konunginn og náði honum á eyðisléttum Jeríkó. Allir hermenn hans yfirgáfu hann og tvístruðust. 6 Kaldear gripu þá konung+ og fóru með hann til Babýlonarkonungs í Ribla þar sem kveðinn var upp dómur yfir honum. 7 Synir Sedekía voru drepnir fyrir augunum á honum. Nebúkadnesar blindaði síðan Sedekía, setti hann í koparhlekki og flutti hann til Babýlonar.+
8 Á sjöunda degi fimmta mánaðarins, það er á 19. stjórnarári Nebúkadnesars Babýlonarkonungs, kom Nebúsaradan+ til Jerúsalem, en hann var varðforingi í þjónustu Babýlonarkonungs.+ 9 Hann brenndi hús Jehóva,+ konungshöllina*+ og öll hús í Jerúsalem.+ Hann brenndi líka hús allra stórmenna í borginni.+ 10 Allur her Kaldea sem var undir forystu varðforingjans reif niður múrana umhverfis Jerúsalem.+ 11 Nebúsaradan varðforingi flutti í útlegð þá sem eftir voru í borginni, liðhlaupana sem höfðu gengið til liðs við konung Babýlonar og alla aðra sem eftir voru.+ 12 En varðforinginn skildi eftir nokkra af fátækustu íbúum landsins til að rækta víngarða og vinna kvaðavinnu.+ 13 Kaldearnir brutu koparsúlurnar+ í húsi Jehóva og einnig vagnana+ og koparhafið+ sem voru í húsi Jehóva og fluttu koparinn til Babýlonar.+ 14 Þeir tóku líka föturnar, skóflurnar, skarklippurnar, bikarana og öll koparáhöldin sem voru notuð við þjónustuna í musterinu. 15 Varðforinginn tók eldpönnurnar og skálarnar sem voru úr ekta gulli+ og silfri.+ 16 Koparinn í súlunum tveim, hafinu og vögnunum sem Salómon hafði gert fyrir hús Jehóva var svo mikill að ekki var hægt að vigta hann.+ 17 Súlurnar voru hvor um sig 18 álnir* á hæð+ og súlnahöfuðin voru úr kopar. Höfuðin voru þrjár álnir á hæð og netin og granateplin allt í kringum þau voru úr kopar.+ Súlurnar tvær og skreytingarnar á þeim voru alveg eins.
18 Varðforinginn flutti einnig með sér Seraja+ yfirprest, Sefanía+ prest, sem var næstur honum, og dyraverðina þrjá.+ 19 Úr borginni tók hann hirðmanninn sem var yfir hermönnunum, fimm af nánustu ráðgjöfum konungs sem fundust í borginni, ritara hershöfðingjans, sem kvaddi landsmenn í herinn, og 60 almúgamenn sem voru enn í borginni. 20 Nebúsaradan+ varðforingi tók þá og flutti þá til Babýlonarkonungs í Ribla.+ 21 Konungur Babýlonar lét taka þá af lífi í Ribla í Hamathéraði.+ Þannig voru íbúar Júda fluttir í útlegð úr landi sínu.+
22 Nebúkadnesar Babýlonarkonungur setti Gedalja,+ son Ahíkams+ Safanssonar,+ yfir fólkið sem hann hafði skilið eftir í Júda.+ 23 Þegar allir hershöfðingjarnir og menn þeirra fréttu að Babýlonarkonungur hefði falið Gedalja að fara með forystuna fóru þeir þegar í stað til Gedalja í Mispa. Það voru þeir Ísmael Netanjason, Jóhanan Kareason, Seraja, sonur Tanhúmets frá Netófa, og Jaasanja sonur Maakatíta og menn þeirra.+ 24 Gedalja vann þeim og mönnum þeirra eið og sagði: „Verið óhræddir að lúta valdi Kaldea. Verið um kyrrt í landinu og þjónið konungi Babýlonar. Þá mun ykkur ganga allt í haginn.“+
25 En í sjöunda mánuðinum kom Ísmael,+ sonur Netanja Elísamasonar, sem var af konungsættinni, til Mispa ásamt tíu mönnum. Þeir drápu Gedalja og Gyðingana og Kaldeana sem voru hjá honum.+ 26 Allt fólkið tók sig þá upp, ungir sem gamlir, þar á meðal herforingjarnir, og fór til Egyptalands+ því að það var hrætt við Kaldea.+
27 Árið sem Evíl Meródak varð konungur í Babýlon lét hann Jójakín+ Júdakonung lausan* úr fangelsi. Það var á 37. útlegðarári Jójakíns Júdakonungs, á 27. degi 12. mánaðarins.+ 28 Hann talaði vingjarnlega við hann og veitti honum meiri heiður en hinum konungunum* sem voru hjá honum í Babýlon. 29 Jójakín fór úr fangabúningnum og borðaði hjá konungi það sem eftir var ævinnar. 30 Hann fékk daglegan matarskammt frá konungi það sem eftir var ævinnar.